Sport

Eltingaleikur Brynjars Leó heldur áfram

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Heimasíða Brynjars Leó
Brynjar Leó Kristinsson hafnaði í 39. sæti í 10 kílómetra göngu með frjálsri aðferð í Oberwiesenthal í Þýskalandi í gær.

Brynjar reynir að ná lágmarkinu fyrir Vetrarólympíuleikana í Sochi í Rússlandi í febrúar. Lágmarkið er 120 FIS punktar eða minna en 39. sæti skilaði honum 138.1 FIS punkti.

Lágmarkið náðist því ekki en hann mun halda áfram að reyna við lágmarkið á nýju ári. Hann ver jólunum við æfingar hjá þjálfara sínum í Svíþjóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×