„Samfélagið brást honum“ Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 3. desember 2013 11:42 "Ég er pínu reið eftir á,“ segir hún. Ef yfirvöld vissu af þessum manni og að hann væri svona veikur af hverju var hann þá settur í blokk með fjölskyldufólki, spyr Kristen Mary Swenson, íbúi í Hraunbæ. mynd/Stefán Karlsson „
Af hverju var þessi maður ekki á stofnun, mér finnst við hafa brugðist honum, samfélagið hefur brugðist honum,“ segir Kristen Mary Swenson, íbúi í Hraunbæ, þar sem hinir skelfilegu atburðir áttu sér stað í gær. Hún segir að það sé sorglegt fyrir alla að ekki séu til úrræði fyrir menn sem glími við slík vandamál. Þjóðfélagið hafi brugðist manninum og yfirvöld. Maðurinn hafi fengið að vera í félagslegri íbúð þar sem hann hafi verið skilinn eftir einn með sín veikindi. „Hvað var maðurinn að gera með haglabyssu?“ spyr hún. Hún hafi lesið um það í morgun að maðurinn hefði verið undir eftirliti og að hann hafi áður otað byssu framan í lögreglumann. „Það fer svolítið fyrir haglabyssu, það er ekki eitthvað sem maður felur svo glatt í vasanum,“ segir hún. „Hvar var eftirlitið?“ „Ég er pínu reið eftir á,“ segir hún. Ef yfirvöld vissu af þessum manni og að hann væri svona veikur af hverju var hann þá settur í blokk með fjölskyldufólki, spyr hún. Talsvert vesen hafi verið vegna mannsins, hann hafi til dæmis gengið á milli bíla og barið í þá og keyrt um fullur. Hún segir engan hafa komið til að ræða við þau um það sem gerðist. Allar upplýsingar sem þau hafi fengið séu úr fjölmiðlum. Hún telur að einhverskonar áfallahjálp ætti að vera í boði fyrir þá sem urðu vitni að þessu. „Strákurinn minn sem er 18 ára kom til mín í gærkvöldi og sagði við mig að honum liði eins og það hefði einhver verið myrtur í húsinu. Hvað á maður að segja, já myrtur? Hann var skotinn!“ segir Kristen.
Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Flugferðum aflýst Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Innlent Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Innlent Hvalveiðilögin barn síns tíma Innlent „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Fleiri fréttir Eitt Egilsstaðaflug en annars öllu aflýst Hvalveiðilögin barn síns tíma Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Sigurður Ingi segir áberandi glufur í sáttmálanum Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman „Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Óveður um jólin og Inga tók lagið á fyrsta fundi ríkisstjórnar Brást of harkalega við dyraati Inga tók jólalag á fyrsta fundi Berglind nýr dómandi við Endurupptökudóm Flugferðum aflýst Vegur að Patreksfirði lokaður vegna snjóflóðs Egill Þór er látinn Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Flæddi inn í hús á Arnarnesi Ný ríkisstjórn fundar í dag „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Missti stjórn á bílnum og endaði inni í garði Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Tvö tröllvaxin mál og sækja eigi tekjurnar í fiskinn „Heimsins furðulegasti fiskur“ afhentur í fjármálaráðuneytinu Kirkjutröppurnar opnaðar að nýju og hiti í hverju þrepi Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Umferðartafir vegna bílveltu á Mýrum Lyklaskipti og afmæli elsta Íslendingsins Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu „Þannig að jólin komu snemma hjá mér“ Sjá meira