Körfubolti

Pavel og félagar með fínan sigur á Södertálje

Stefán Árni Pálsson skrifar
Pavel í leik með íslenska landsliðinu
Pavel í leik með íslenska landsliðinu Mynd / Anton
Pavel Ermolinskij og félagar í Norrköping Dolphins unnu fínan sigur, 81-79, á Södertálje í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag en Pavel hefur verið að koma til baka úr meiðslum og er að finna sig betur og betur.

Pavel átti fínan leik í dag en hann skoraði níu stig, tók þrjú fráköst og gaf 6 stoðsendingar.

Norrköping er í fimmta sæti deildarinnar en þeir hafa unnið 20 leiki og tapað 11.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×