Tónlist

Kaleo frumsýnir myndband við Vor í Vaglaskógi í kvöld

Freyr Bjarnason skrifar
Kaleo frumsýnir nýtt myndband í kvöld.
Kaleo frumsýnir nýtt myndband í kvöld. fréttablaðið/anton
Hljómsveitin Kaleo úr Mosfellsbæ frumsýnir nýtt tónlistarmyndband í kvöld við útgáfu hennar af hinu sígilda íslenska dægurlagi, Vor í Vaglaskógi.

Útgáfan sem strákarnir hljóðrituðu fyrir stuttu er gerð með góðfúslegu leyfi höfunda og hefur á augabragði náð miklum vinsældum.

Lagið, sem verður gefið út um helgina, er sem stendur í efsta sæti vinsældarlista Rásar 2 og situr í níunda sæti á lista Bylgjunnar. Myndband af lifandi flutningi þeirra er komið með um þrjátíu þúsund spilanir á síðunni Youtube.

„Þetta lag var búið að vera lengi í miklu uppáhaldi hjá söngvaranum Jökli. Hann byrjaði að þróa þessa útgáfu fyrir nokkrum árum og svo byrjuðum við að spila hana fyrir ári síðan,“ segir trommarinn Davíð Antonsson. „Við fengum góðar viðtökur og svo tókum við þetta lag „live“ á Rás 2 og það fékk enn þá betri viðtökur. Þannig að við ákváðum að henda í stúdíóútgáfu sem hefur ekki fengið síðri viðtökur.“

Auk Davíðs skipa Kaleo þeir Jökull Júlíusson, Daníel Ægir Kristjánsson og Rubin Pollock. Þeir eru allir 23 ára og eru að undirbúa sína fyrstu plötu sem er væntanleg á næstu mánuðum. „Við erum búnir að spila allir saman síðan við vorum í tíunda bekk. En Kaleo var stofnuð rétt fyrir Airwaves í fyrra þar sem við spiluðum nokkur „off-venue“-gigg.

Hljómsveitin var formlega stofnuð þegar við fengum gítarleikarann Rubin Pollock til liðs við okkur,“ segir Davíð en þeir félagar störfuðu áður undir nafninu Timburmenn og spiluðu eingöngu lög eftir aðra. „Við fengum ógeð af því og vildum einbeita okkur að okkar eigin tónlist.“










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.