Topplið NBA mætast í kvöld í beinni á Stöð 2 Sport Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2013 20:30 Dwyane Wade og LeBron James Mynd/Nordic Photos/Getty
Stórleikur San Antonio Spurs og Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta í kvöld verður sýndur beint á Stöð 2 Sport en ekkert lið hefur unnið fleiri leiki á tímabilinu en einmitt þessi tvö stjörnuprýddu lið. Þetta verður fyrsti alvöru leikur liðanna í vetur en það vakti mikla athygli í fyrri leik liðanna í Maimi í nóvember þegar Gregg Popovich, þjálfari San Antonio Spurs, ákvað að hvíla alla sína bestu leikmenn í 100-105 tapi á móti Miami. Manu Ginobili, Tim Duncan, Tony Parker og Danny Green voru ekki einu sinn í höllinni þegar leikurinn fór fram. Miami hefur unnið 28 af síðustu 29 leikjum sínum og nánast gulltryggir sér heimavallarrétt út úrslitakeppnina með sigri í kvöld. San Antonio hefur hinsvegar unnið 28 af síðustu 30 heimaleikjum sínum og er gríðarlega erfitt heima að sækja. Manu Ginobili verður ekki með í kvöld eftir að hann tognaði aftan í læri í sigrinum á Los Angeles Clippers á föstudagskvöldið en gamli refurinn Tim Duncan sá þá öðrum fremur um að landa sigrinum með 34 stigum á 32 mínútum. Leikur San Antonio Spurs og Miami Heat hefst klukkan 23:00 og er í beinni á Stöð 2 Sport.
NBA Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira