Frétti af brottvikningunni á Fésbókinni Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 9. júlí 2013 07:00 Myndband með handtökunni hefur vakið mikla athygli eftir að það var birt á fésbókinni.
Lögreglumanni, sem handtók ölvaða konu á Laugavegi um síðustu helgi, var vikið tímabundið frá störfum í gær. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er talsverð gremja meðal lögreglumanna vegna þess hvernig að brottvikningunni var staðið. Handtakan var tekin upp og vakti mikla athygli þegar hún var sýnd víða um netheima. Á meðal þess sem er gagnrýnt er að lögreglumaðurinn sem sést á myndbandinu frétti það á Fésbókinni að búið væri að leysa hann frá störfum meðan á rannsókn málsins stæði. Ríkislögreglustjóri fór fram á að það yrði gert og varð Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, við því. Ríkissaksóknari mun rannsaka málið. „Þetta gerðist allt mjög hratt og því getur verið að hann hafi heyrt af þessu með einhverjum öðrum hætti en við tilkynntum þetta viðeigandi aðilum eins fljótt og okkur var unnt," segir Stefán. „Það er vissulega óheppilegt ef fólk fær svona fréttir frá einhverjum öðrum leiðum en ekki frá okkur beint en hann fékk vitneskju frá okkur í hvaða farveg þetta færi löngu áður en það komst í fjölmiðla." Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir að skoða verklag lögreglunnar eftir að málið komst í hámæli. Á myndbandinu sést hvernig konan veitist að lögreglumönnum í bíl, en í kjölfarið vindur einn þeirra sér út, skellir henni í götuna og handjárnar hana.
Mest lesið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Full ástæða til að vara foreldra við Innlent Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Innlent Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Innlent Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Innlent Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Innlent Útskýrir ummælin um barnlausar kattarkonur Erlent Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Innlent Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Innlent Fleiri fréttir Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Jökulhlaup virðist hafið úr Mýrdalsjökli Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Full ástæða til að vara foreldra við Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Kæra Byko vegna límmiða úr sögunni Ármúlinn verði vel nothæfur leikskóli eftir tvær vikur Hnífamaðurinn í Lundi áfram bak við lás og slá „Hann meiddi mig ekki mikið“ Umboðsmaður barna krefst svara um nýtt námsmat Sala á fíkniefnum fari fram fyrir opnum tjöldum Ferðamennirnir lausir úr haldi eftir líkamsárás Sala fíkniefna fyrir opnum tjöldum og stemmning á Húsavík Ný líkön sýna umfang hraunsins Allt í háaloft þegar faðirinn sneri til baka úr veikindaleyfi Óbreyttir bændur í Mýrdalnum hafi ekki efni á malbiki Ragnar Þór kennir Pawel eitt og annað í kennslufræðum Segir málið hið sérkennilegasta og krefst svara Boðar laugardagsbongó Sjá meira