Snæfell vann í háspennuleik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. apríl 2013 19:13 Berglind Gunnarsdóttir, leikmaður Snæfells.
Snæfell jafnaði í dag metin gegn KR í undanúrslitarimmu liðanna í úrslitakeppni Domino's-deildar kvenna með naumum sigri, 61-59, í æsispennandi leik. KR vann fyrsta leik liðanna í Stykkishólmi og fékk því tækifæri til að komast í 2-0 á heimavelli í dag. KR-ingar byrjuðu betur í leiknum en munurinn var þó aldrei mikill á milli liðanna. Staðan í hálfleik var 34-30, KR-ingum í vil. Staðan var 59-55 þegar þrjár mínútur voru eftir og þá tók Snæfell völdin í sínar hendur. Hildur Sigurðardóttir jafnaði metin þegar 29 sekúndur voru eftir og KR hélt í sókn. En Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir klikkaði á skoti og gestirnir fengu boltann þegar sautján sekúndur voru eftir. Kieraah Marlow kom Snæfelli yfir en það var þó enn tími fyrir KR-inga. Shannon McCallum reyndi þriggja stiga körfu þegar leiktíminn var að renna út en skotið geigaði. Tveggja stiga sigur Snæfells var því staðreynd en þegar uppi var staðið hafði Snæfell skorað sex síðustu stig leiksins. Marlow skoraði 26 stig fyrir Snæfell og tók tólf fráköst. Berglind Gunnarsdóttir bætti við þrettán stigum fyrir gestina. Hjá KR var McCallum stigahæst með 31 stig en Sigrún Ámundadóttir kom næst með ellefu.KR-Snæfell 59-61 (23-18, 11-12, 14-13, 11-18)KR: Shannon McCallum 31/12 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 11/7 fráköst, Helga Einarsdóttir 4/9 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 4/6 fráköst/5 stoðsendingar, Sara Mjöll Magnúsdóttir 4/4 fráköst, Ína María Einarsdóttir 3, Björg Guðrún Einarsdóttir 2.Snæfell: Kieraah Marlow 26/12 fráköst/3 varin skot, Berglind Gunnarsdóttir 13, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 8/8 fráköst, Hildur Sigurðardóttir 6/4 fráköst/8 stoðsendingar, Hildur Björg Kjartansdóttir 5/6 fráköst, Sara Sædal Andrésdóttir 3.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira