Norðurlandameistaramótið í víðavangshlaupum fer fram í Laugardalnum í dag og það er útlit fyrir spennandi keppni. Fremst í flokki íslenska liðsins verða stjörnuhlaupararnir Kári Steinn Karlsson og Aníta Hinriksdóttir sem reyna sig við bestu hlaupara annarra Norðurlanda.
Kári Steinn Karlson leiðir íslenska karlaliðið en hann vann til bronsverðlauna fyrir tveimur árum í þessari keppni.
Aníta Hinriksdóttir keppir í unglingaflokki og vann einnig til bronsverðlauna í þessu móti í Danmörku í fyrra. Hún fær hins vegar mikla keppni frá Oona Kettunen frá Finnlandi sem sigraði EM í 3000 metra hindrunarhlaupi í sumar.
Fyrsta hlaup hefst klukkan eitt en það síðasta klukkan fimmtán.
Þetta verður fyrsta alþjóðlega víðavangshlaupið sem fram fer í Reykjavík en íslenska liðið skipa 20 manns og því sem næst allt okkar besta fólk mætir til leiks.
Íslenska liðið er skipað eftirtöldum einstaklingum:
Karlar (fæddir 1993 og fyrr) 9,0 km:
Kári Steinn Karlsson, 1986
Þorbergur Ingi Jónsson, 1982
Ármann Eydal Albertsson, 1981
Arnar Pétursson, 1993
Björn Margeirsson, 1979
Konur (fæddar 1993 og fyrr) 7,5 km:
Arndís Ýr Hafþórsdóttir, 1988
Íris Anna Skúladóttir, 1989
Fríða Rún Þórðardóttir, 1971
María Kristín Gröndal, 1980
Ebba Særún Brynjarsdóttir, 1982
Ungkarlar (fæddir 1994 og síðar) 6,0 km:
Ingvar Hjartarson, 1994
Sæmundur Ólafsson, 1995
Þór Daníel Hólm, 1996
Davíð Erik Mollberg, 1994
Bjarki Freyr Rúnarsson, 1994
Ungkonur (fæddar 1994 og síðar) 4,5 km:
Aníta Hinriksdóttir, 1996
Helga Guðný Elíasdóttir, 1994
María Birkisdóttir, 1995
Andrea Kolbeinsdóttir, 1999
Málfríður Anna Eiríksdóttir, 1997
