Golf

Potter yngri sigraði en Wozniacki stal senunni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
McIlroy og Wozniacki í góðum gír á Augusta-vellinum í gær.
McIlroy og Wozniacki í góðum gír á Augusta-vellinum í gær. Nordicphotos/Getty
Bandaríkjamaðurinn Ted Potter Jr. kom, sá og sigraði í hinni árlegu par 3 keppni sem fram fer daginn fyrir Masters-mótið í golfi.

Fimm kylfingar stóðu jafnir að loknum holunum níu á fjórum undir pari. Ernie Els og Nick Watney drógu sig þó úr keppni svo að Potter barðist um sigurinn við Phil Mickelson og Matt Kuchar.

Par dugði Mickelson ekki á fyrstu holu því Kucher og Potter yngri nældu sér í fugl. Potter, sem er að spila í fyrsta skipti á Masters, hélt uppteknum hætti á næstu holu á meðan Kucher paraði holuna. Þar með var leik lokið.

Potter yngri með sigurverðlaun sín.Nordicphotos/Getty
Sigur Potter yngri gæti þó komið honum í koll ef rýnt er í sögu Masters. Frá því keppnin fór fyrst fram árið 1960 hefur sigurvegaranum í par 3 keppninni aldrei tekist að klæðast jakkanum græna fjórum dögum síðar.

Léttleikinn sveif yfirvötnunum á Augusta í gær og beindist kastljós margra að ofurparinu Rory McIlroy og Caroline Wozniacki. Danska tennisstjarnan sá um að bera kylfurnar fyrir kærastann sinn frá Norður-Írlandi. Svipað var uppi á teningnum hjá öðrum kylfingum sem höfðu fjölskyldumeðlim eða vin á sinni hægri hönd enda allt til gamans gert.

Keppni á Masters-mótinu hefst í dag. Bein útsending á Stöð2 Sport & HD hefst klukkan 19.

Sportið á Vísi er á Facebook. Vertu með.

Um par 3 keppninaHin árlega par 3 keppni fór fram á par 3 vellinum á Augusta National-golfvellinum í gær. Mótið er að mestu haldið til skemmtunar og fá kylfingar þar frábært tækifæri til að eyða deginum með fjölskyldu og vinum.

Fyrst var leikið í þessu móti árið 1960 þegar Sam Snead stóð uppi sem sigurvegari. Fjölmargir fyrrverandi risameistarar sem eru komnir á gamals aldur taka þátt í par 3 keppninni á ári hverju og nýtur mótið mikilla vinsælda meðal áhorfenda. Alls hafa kylfingar farið 75 sinnum holu í höggi í par 3 mótinu frá upphafi og var met sett árið 2002 þegar fimm kylfingar fóru holu í höggi.

Ef þú ert þátttakandi í Masters-mótinu þá er ekkert sérstaklega spennandi að vinna par 3 keppnina. Aldrei í sögu Masters-mótsins hefur kylfingi tekist að vinna bæði par 3 keppnina og síðan sjálft Masters-mótið. Írinn Padraig Harrington hefur unnið þetta mót þrisvar á síðastliðnum áratug og síðast í fyrra þegar hann og Johnathan Byrd voru jafnir og efstir. Vallarmetið á par 3 vellinum er 20 högg og er í eigu þeirra Art Wall og Gay Brewer.


Tengdar fréttir

Tiger: Rory er minn helsti keppinautur

Þó svo Norður-Írinn Rory McIlroy vilji sem minnst gera úr því að hann og Tiger Woods séu orðnir aðalkeppinautar segir Tiger að hann líti á McIlroy sem sinn helsta keppinaut.

Klæðist heilsuhraustur Tiger græna jakkanum í fimmta sinn?

Tiger Woods er sá kylfingur sem flestir veðja á í aðdraganda Masters-mótsins í ár. Hann er á ný í efsta sæti heimslistans í golfi eftir að hafa unnið þrjú mót í PGA-mótaröðinni í ár og er í góðu formi fyrir fyrsta risamót ársins.

Titlaleysi Tiger kom Nicklaus í opna skjöldu

Það kom Jack Nicklaus á óvart að heyra að bið Tiger Woods eftir sigri á risamóti í golfi væri orðin fimm ára löng. Goðsögnin telur þó öruggt að Tiger muni ná meti sínu áður en langt um líður.

Ég er ekki í sama klassa og Tiger

Fyrsta stórmót ársins, Masters-mótið, hefst á Augusta-vellinum á morgun. Mikil spenna er líkt og venjulega fyrir mótinu. Flestra augu beinast að Nike-félögunum Tiger Woods og Rory McIlroy. Fjölmiðlar hafa reynt að stilla þeim upp sem helstu keppinautum fyrir mótið en Norður-Írinn McIlroy hefur reynt að draga úr öllu slíku tali.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×