Tíska og hönnun

Haustlínan féll í skugga hneykslis

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Oscar de la Renta hefur verið mikið á milli tannanna á fólki eftir að sá orðrómur kom upp að hann hefði boðið John Galliano að vinna fyrir sig í haust. Galliano var eins og margir vita rekinn úr starfi sínu hjá Christian Dior eftir að myndband náðist af honum þar sem hann lofsöng nasisma og lét út úr sér ýmis andgyðingsleg níð. Tískuheimurinn hefur átt erfitt með að fyrirgefa þetta atvik og því kom það mörgum í opna skjöldu þegar fréttist af ráðningunni, en hún fékkst staðfest á sýningu haust- og vetrarlínu tískuhússins á þriðjudaginn.

Línan var engu að síður undurfögur eins og við var að búast frá de la Renta, en áhrif Gallianos sáust greinilega. Fatnaðurinn sjálfur féll því í skuggann af spennuþrungnum sal sem beið þess að Galliano myndi stíga fram á sviðið að sýningu lokinni. Oscar de la Renta steig að vísu einn fram á meðan Galliano taldi öruggara að halda sig baksviðs. Hér sjáum við myndir frá sýningunni.

Oscar de la Renta og John Galliano.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.