Lífið

Sjáðu þegar Reese Witherspoon var handtekin

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá þegar Hollywoodleikkonan Reese Witherspoon og eiginmaður hennar, James Toth, voru handtekin og í kjölfarið fangelsuð í stutta stund á föstudaginn í Atlanta í Bandaríkjunum. Toth ók undir áhrifum áfengis og var stöðvaður af lögreglunni.   Reese var handtekin fyrir að trufla framgang réttvísinnar þegar lögreglumenn höfðu afskipti af eiginmanni hennar fyrir umferðarlagabrot eins og sjá má í myndskeiðinu frá TMZ vefnum.



Reese var handjárnuð eftir að hún óhlýðnaðist fyrirmælum lögreglumanna um að hún ætti að halda sig inni í bíl á meðan verið var að handtaka eiginmanninn.  Leikkonan mun hafa dregið í efa að maðurinn sem var að handtaka eiginmann hennar væri raunverulegur lögreglumaður „Veistu hver ég er,“ mun hún síðan hafa sagt. Hjónin voru látin laus gegn tryggingu eftir nokkurn tíma í fangelsinu.  Hún sendi síðan frá sér yfirlýsingu þar sem hún biðst afsökunar á þessari framkomu.

Dragðu Tarotspil dagsins hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.