Um 110 Íslendingar hafa horfið á síðustu fjórum áratugum 13. janúar 2013 18:28
Á síðustu fjórum áratugum hafa um 110 Íslendingar horfið. Sjórinn hefur tekið meirihluta þessa hóps, eða yfir sjötíu manns. Eitt af óútskýrðum mannshvörfum er mál tveggja drengja sem hurfu sporlaust í Keflavík fyrir nítján árum. Samfélagið á Suðurnesjum var slegið eftir að Óskar Halldórsson og Júlíus Karlsson, fjórtán og fimmtán ára drengir, hurfu sporlaust þann 24. janúar 1994. Talið var að þeir hefðu mögulega farið í sjóinn og var mikil áhersla lögð á leit þar, en kafararnir þurftu að hafa sig alla við vegna kuldans. Þegar mest lét voru um fjögurhundruð manns við leit að drengjunum. Ein af þeim vísbendingum sem llögreglan fékk var að lögreglan fékk var að drengirnig hefðu sést á milli fimm og sex síðdegis á hlaupum norður Austurgötu í átt að tónlistarskólanum. Þeir hafi átt að vera skellihægjandi, litið um öxl eins og þeir hefðu gert eitthvað af sér og einhver væri að elta þá. Helga Arnardóttir fréttamaður fjallar um hvarf drengjanna, leitina að þeim og ræðir við ættingja þeirra, í fyrsta þætti af Mannshvörfum sem hefst á Stöð 2 í kvöld. Yngsti bróðir Júlíusar var lagður í einelti í skólanum eftir að bróðir hans týndist. Hann fékk að heyra margt ljótt og bróðir hans meðal annars kallaður fiskafóður í hans eyru. Drengirnir voru úrskurðaðir látnir þremur árum eftir að þeir hurfu. Fjölskyldur drengjanna hafa aldrei fengið nein svör og segir móðir Júlíusar að það sé það erfiðasta. „Maður hugsar um barnið sitt, maður hugsar til hans," segir móðir Júlíusar. „Maður óskar þess svo innilega að einhvern tíma komi eitthvað sem segi hvað skeði."
Mest lesið Meira um ofbeldi og hótanir og starfsfólk upplifir óöryggi í vinnunni Innlent Henti barnungum „óþekkum“ sonum sínum í gólfið Innlent Maðurinn fundinn en ekki hægt að segja til um ástand hans Innlent Tjaldstæðadólgur hótar að sverta staðinn á netinu Innlent Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Erlent Glæsilegt gullregn og hlynur í Hveragerði Innlent Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Erlent Mikil og þétt umferð í dag Innlent Sagði hvorki unnustu sína né börn hennar verðskulda líf Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Fleiri fréttir Meira um ofbeldi og hótanir og starfsfólk upplifir óöryggi í vinnunni Glæsilegt gullregn og hlynur í Hveragerði Mikil og þétt umferð í dag Eldsneyti komið aftur í Staðarskála Aukið ofbeldi gegen heilbrigðisstarfsfólki og kosningar í Bretlandi Virðist ekki hafa dregið úr kvikuinnstreymi í Svartsengi Maðurinn fundinn en ekki hægt að segja til um ástand hans Henti barnungum „óþekkum“ sonum sínum í gólfið Ekkert eldsneyti í Staðarskála Ekki spurst til mannsins síðan snemma í gær Fjöldi erlendra meintra gerenda nær tvöfaldaðist á tveimur árum Kristrún fagnaði með Starmer: „Mikill innblástur fyrir okkur“ Segir Miðflokkinn vilja skreyta sig stolnum fjöðrum Taka fyrir nauðgun á táningsstúlku vegna vinnubragða Landsréttar Skjálfti suðvestur af Reykjanestá Vill gera smokkinn sexí aftur Tjaldstæðadólgur hótar að sverta staðinn á netinu Dæmdar tæplega fimmtíu milljónir fjórtán árum eftir handtökuna Ökumaðurinn á lífi en töluvert slasaður Meirihluti sem vill þjóðaratkvæðagreiðslu ekki svo mikill Hafa áhyggjur af göngumanni á Skálafellsjökli Tekið á símanotkun strætóbílstjóra með hörku Svindlsíður herja á landsmótsgesti Sagði hvorki unnustu sína né börn hennar verðskulda líf Hvetur fólk til að skipta sér meira af öðrum Skjálfta varð vart á höfuðborgarsvæðinu Allsgáður en ók niður ljósastaur Stöðug fjölgun tilfella þar sem eggvopnum er beitt Tvö þúsund skora á Guðrúnu að hætta við brottvísunina Skilur ekki hægagang dómsmálaráðuneytisins Sjá meira