Miami og Memphis komin í 3-1 Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. maí 2013 07:00 Marc Gasol og Darrell Arthur, leikmaður Oklahoma City. Nordic Photos / Getty Images
Miami og Memphis unnu bæði lykilleiki í rimmum sínum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Meistararnir í Miami unnu þægilegan sigur á Chicago, 88-65, og náðu þar með 3-1 forystu í einvíginu. LeBron James skoraði 27 stig fyrir Miami og gaf átta stoðsendingar. Þetta er næstlægsti stigafjöldi andstæðings Miami í sögu úrslitakeppninnar en Chicago sá aldrei til sólar í leiknum. Chris Bosh var með fjórtán stig en Dwyane Wade hafði hægt um sig og skoraði aðeins sex. Luol Deng og Kirk Hinrich voru frá vegna meiðsla, sem og Derrick Rose vitanlega. Carlos Boozer var með fjórtán stig og tólf fráköst. Nate Robinson klikkaði á öllum tólf skotum sínum í leiknum, sem segir sitt. Það var meiri spenna í hinum leiknum en Memphis þurfti framlengingu til að vinna sigur á Oklahoma City, 103-97. Oklahoma byrjaði mun betur og komst mest sautján stigum yfir. En Memphis hefur verið frábært á heimavelli og vann sig aftur inn í leikinn. Kevin Durant náði að tryggja Oklahoma City framlengingu á lokasekúndum venjulegs leiktíma, eins og sjá má hér neðst í fréttinni, en hann klikkaði á öllum fimm skotum sínum í framlengingunni og Memphis gekk á lagið. Hann var alls með 27 stig í leiknum. Mike Conley skoraði 24 stig fyrir Memphis og þeir Marc Gasol og Zach Randolph náði báðir þreföldum tvennum - báðir með 23 stig og rúm tíu fráköst. Oklahoma City er vitanlega án Russell Westbrook og virðist á leið út úr úrslitakeppninni, rétt eins og Chicago.
NBA Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira