Borgarstjóri Reykjavíkur setti inn athygliverða hugleiðingu á Facebook síðu sína í dag.
Hann leiðir líkum að því að Guð sé bara blekking sem gæti leitt fólk til geðveiki.
Hann skrifar:
„Hvað eiga Íslamistar, Rússar og Bandaríkjamenn allir sameiginlegt? Þeir tala mikið um Guð. Dráp í nafni Guðs. Kúgun í nafni Guðs. Guð er ást segja þeir. Í alvöru? Kannski er Guð blekking sem leiðir til geðveiki? Heimur án trúarbragða yrði miklu öruggari heimur, held ég. Hættið að berjast í hausnum á ykkur. Hættið að berjast á heimilum ykkar. Hættið að berjast á götum úti. Hættið stríðum. Ofbeldi gegn einum er ofbeldi gegn öllum. Berjumst á móti stríðum en ekki í stríðum!“
Jón Gnarr er frábær borgarstjóri.
Harmageddon