Tíska og hönnun

Best klæddu ritstýrurnar

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Tískumánuðurinn febrúar hefur nú runnið sitt skeið og stóru tískuvikurnar eru yfirstaðnar. Áhrifafólk í tískuheiminum fer aftur til daglegra starfa, hvort sem það er hjá tímaritum, tískuhúsum eða verslunum. Skoðanir ritstjóra helstu tískutímarita heims á sýningunum geta skipt hönnuðina mikla máli í framhaldinu. Þær geta lofsamað línurnar í tímaritunum og aukið þannig söluna, eða gert einmitt andstæðuna séu þær ekki hrifnar. Hér sjáum við myndir af valdamestu konum tískuheimsins á tískuvikunum, þar sem þær eru að sjálfsögðu allar óaðfinnanlegar í klæðaburði.

Anna Dello Russo, ritstýra japansa Vogue, vekur athygli hvar sem hún fer.
Christine Centenera er ristjóri hjá ástralska Vogue. Hér er hún fyrir utan sýningu Balmain.
Joanna Hillman vinnur hjá Teen Vogue.
Emanuelle Alt er valdamikil, enda ritstýra franska Vogue.
Giovanna Battaglia, ritstýra L'Uomo Vogue er með töffaralegan stíl.
Miroslava Duma í pilsi frá Ostwald Helgason.
Anna Wintour , ritstýra bandaríska Vogue, er drottning tískuheimsins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×