Körfubolti

Hlynur með stórleik í sigri Sundsvall

Hlynur og Jakob.
Hlynur og Jakob. Mynd/Valli
Varnarmaður ársins í sænska körfuboltanum, Hlynur Bæringsson, átti stórleik fyrir Sundsvall Dragons í kvöld er liðið vann lífsnauðsynlegan sigur, 80-75, gegn Södertalje Kings í úrslitum sænska körfuboltans.

Staðan í einvíginu er því 2-1 fyrir Södertalje en vinna þarf fjóra leiki til þess að vinna sænska meistaratitilinn.

Hlynur skoraði 18 stig og tók 7 fráköst ásamt því að gefa 3 stoðsendingar. Hann skoraði úr mikilvægum vítaskotum undir lokin og stal svo boltanum af leikmanni Södertalje í lokasókn þeirra og Sundsvall tveim stigum yfir.

Jakob Örn Sigurðarson hafði óvenju hljótt um sig í liði Sundsvall. Skoraði 6 stig og gaf 5 stoðsendingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×