Körfubolti

Davíð dæmir hjá Dani í Skot­landi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Davíð á ferðinni í Evrópuleik.
Davíð á ferðinni í Evrópuleik. mynd/aðsend

Körfuknattleiksdómarinn Davíð Tómas Tómasson er á ferð og flugi í þessari viku að dæma í Eurocup kvenna.

Davíð verður einn dómara á leik Caledonia Gladiators og Elfic Fribourg er leikurinn fer fram í 6.000 manna höll í Skotlandi. Hinir tveir dómararnir koma frá Belgíu.

Dani í leik með Fribourg,mynd/aðsend

Með liði Fribourg leikur Dani Rodriguez sem var í herbúðum Grindavíkur síðustu ár.

Gladiators-liðið er tiltölulega nýtt félag sem varð í öðru sæti í bresku deildinni árið 2023 en það er besti árangur sem körfuboltalið frá Skotlandi hefur náð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×