Lífið

Úr svefnherberginu í sólskinsbylgju-reggí

Freyr Bjarnason skrifar
Reggílagið Aheybaró með Kött Grá Pje, sem er hugarfóstur Atla Sigþórssonar, hefur fengið fín viðbrögð að undanförnu, þar á meðal á Rás 2. Svo gæti farið að það verði sumarslagarinn í ár, eða alla vega einn af þeim.

„Ég er farinn að vona það, eftir að fólk hefur verið að spyrja mig þessarar spurningar. Lagið virðist gefa frá sér einhverja sólskinsbylgju,“ segir Atli, spurður hvort sumarslagarinn sé ekki kominn.

Stutt er síðan Atli kom fram á sjónarsviðið með Kött Grá Pjé. Hann hefur gefið út nokkur lög á netinu í samstarfi við vini sína og í þetta sinn varð Toggi Nolem úr rappsveitinni Skyttunum fyrir valinu. „Hann sendi mér grunn með reggífílingi og svo rappaði ég eins og mér fannst henta við það,“ segir Atli og kveðst vera fjandi ánægður með útkomuna.

Hann hefur áður komið lítillega við sögu á tveimur rappplötum með Skyttunum og Forgotten Lores, sem komu báðar út árið 2003. Annars hefur hann ekkert komið nálægt tónlistarsköpun fyrr en nú. „Ég var svona svefnherbergisrappari aðallega.“

Atli, sem er í háskólanámi, er frá Akureyri eins og Skytturnar en hefur verið búsettur í Reykjavík undanfarin átta ár.

Spurður út í nafnið Kött Grá Pje, segir hann það vera hálfgeraðan einkabrandara. Kött er einfaldlega þolmynd orðsins köttur en vísar einnig í gömul bandarísk hiphopp-nöfn sem byrjuðu á „Cut“. Grá er liturinn grár án „r-sins“ og Pje er stytt ættarnafn sem Atli tekur sér frá geimspekingnum Dr. Helga Pjeturssyni, sem skrifaði Nýall-bækurnar sem hann heldur mikið upp á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.