Tíska og hönnun

Djörf á forsíðu GQ

MYNDIR / COVER MEDIA
Poppstjarnan Beyonce sýnir ansi mikið hold á forsíðu nýjasta heftis tímaritsins GQ sem kemur í verslanir vestan hafs næsta þriðjudag.

Það var heimsfrægi ljósmyndarinn Terry Richardson sem myndaði Beyonce en hann hefur myndað margar frægustu konur heims, eins og Lady Gaga, Jennifer Aniston og Miranda Kerr.

Beyonce er dugleg að deila myndum af sér með aðdáendum sínum.
Það er nóg að gera hjá Beyonce þessa dagana. Hún mun koma fram þegar Barack Obama verður vígður í embætti forseta Bandaríkjanna seinna í mánuðinum og í hálfleik í bandarísku Ofurskálinni.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.