Lífið

Vantar hornin

Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar
Bryndís Hera Gísladóttir var kosin í 5. sæti í Ungfrú Ísland. Um förðun á þessari mynd sá Andrea Sigurðsdóttir með Nyx-förðunarvörum.
Bryndís Hera Gísladóttir var kosin í 5. sæti í Ungfrú Ísland. Um förðun á þessari mynd sá Andrea Sigurðsdóttir með Nyx-förðunarvörum. mynd/stefán
„Falleg föt hafa alltaf verið áhugamál hjá mér og ég á rosalega mikið af þeim,“ segir Bryndís Hera sem að undanförnu hefur þrívegis farið utan með kærastanum Ásgeiri Kolbeinssyni og gert reyfarakaup á flottum tískufatnaði.

„Við Ásgeir deilum ferðabakteríunni og förum utan sem oftast. Fyrst fórum við til New York, síðan í sólarlandaferð til Spánar og síðast til Lundúna. Í desember ætlum við aftur til New York þar sem ég ætla að kaupa mér marga jólakjóla og smávegis af jólagjöfum,“ segir Bryndís og hlakkar til.

„Ég hef engan ákveðinn stíl heldur sveiflast dag frá degi á milli á stíla. Ég var til dæmis lítið fyrir kjóla áður en ég eignaðist svona mikið af þeim og líður jafn vel í gallabuxum eða íþróttafötum,“ segir Bryndís sem er litaglöð.

„Ég valdi mér gula vetrarúlpu því glaðlegir litir klæða mig vel. Þessi úlpa er mér allt því hún er hlý eins og sæng og dýrmæt því hún var rándýr og tók mig langan tíma að safna fyrir henni.“

Í Fegurðarsamkeppni Íslands var Bryndís kosin fimmta fegurst og fyrirsæta Júnik og Púkans.com. Af því er viðurnefnið púkastelpan komið.

„Það halda margir að ég sé púki í mér en ég er hvorki púkaleg né púki og það vantar á mig hornin,“ segir hún og hlær.

Bryndís er fædd og uppalin í Þorlákshöfn og nýlega flutt til borgarinnar.

„Ég er meiri sveitastelpa en borgarbarn og líður best í sveitinni. Mér fannst gott að alast þar upp og tel betra fyrir börn að alast upp við frelsið sem fylgir því að búa í litlum bæ eða sveit.“

Bryndís er nú á lokaári til stúdentsprófs við Fjölbrautaskóla Suðurlands og vinnur á Austur með náminu.

„Mig langar í skapandi nám eftir stúdentspróf og er alltaf uppfull af hugmyndum um hönnun á öllu mögulegu. Ég hef alltaf verið frjó í hugsun og skapaði mér strax eigin fatastíl sem barn, eins og þegar ég strengdi græna skóreim utan um hausinn og stóð á því fastar en fótunum að flott væri að fara þannig út þótt frænka mín harðneitaði að láta sjá sig með mér.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×