Tíska og hönnun

Tískuvaka í miðbænum

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Í tilefni af Reykjavík Fashion Festival og HönnunarMars verður haldin svokölluð Tískuvaka í miðbæ Reykjavíkur í kvöld. Tískuvakan er haldin að erlendri fyrirmynd, en margir kannast við Fashion's Night Out sem haldin er samhliða stóru tískuvikunum í New York og London.

Mundi sýnir vor-og sumarlínu sína undir berum himni á Tískuvökunni.
Helstu verslanir verða opnar til 21.00 og það verður nóg um að vera. Fatahönnuðurinn MUNDI stoppar umferð á Laugaveginum og heldur sýningu á vor – og sumarlínu sinni undir berum himni kl 20.15 fyrir utan ATMO að Laugavegi 91. Pop Up Verzlun með íslenskri hönnun verður einnig á efri hæð ATMO. Kronkron verður með heljarinnar veislu kl 20 í tilefni þess að Design Forum í Finnlandi verður með Pop Up markað í versluninni yfir helgina. Það verður því af nógu að taka í íslenska hönnunarheiminum, bæði í kvöld og næstu daga.

Það verður mikið um gleði í Kronkron í kvöld.
Nánari upplýsingar má finna hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.