Fótbolti

Hallbera og Sara í liði vikunnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hallbera Guðný fyrir miðju ásamt félögum sínum í íslenska landsliðinu.
Hallbera Guðný fyrir miðju ásamt félögum sínum í íslenska landsliðinu. Mynd/Stefán

Landsliðskonurnar Hallbera Guðný Gísladóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir voru valdar í lið 7. umferðar í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu af vefmiðlinum Spelare12.com.

Vefmiðillinn sérhæfir sig í evrópskri kvennaknattspyrnu og fer fögrum orðum um frammistöðu Hallberu og Söru í síðustu leikjum Piteå IF og LdB Malmö. Stendur Hallbera vaktina í vinstri bakverði úrvalsliðsins en Sara Björk er djúpur miðjumaður.

Landsliðskonurnar tvær verða í eldlínunni með íslenska landsliðinu annan laugardag þegar Skotar koma í heimsókn á Laugardalsvöllinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×