Tíska og hönnun

Límmiðar til að skreyta veggi

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Systurnar Lilja Björk, Kristín og Sigrún Þuríður reka saman fyrirtækið Vegg.
Systurnar Lilja Björk, Kristín og Sigrún Þuríður reka saman fyrirtækið Vegg. MYND/RUNÓLFUR BIRGIR LEIFSSON
„Við vorum búnar að tala um það í svolítinn tíma að gera eitthvað saman systurnar. Við ræddum til dæmis um að stofna fyrirtæki þar sem við gætum sameinað krafta okkar. Svo einn daginn kom upp hugmyndin um að framleiða vegglímmiða og þá var ekki aftur snúið,“ segir Lilja Björk Runólfsdóttir, sem stofnaði fyrirtækið Vegg ásamt systrum sínum, þeim Kristínu og Sigrúnu Þuríði.

Afsakið hlé
Vegg framleiðir vegglímmiða og er með tvær vörulínur er nefnast Farsælda frón og Kvak. „Í Farsælda frón er lögð áhersla á sögu, menningu og náttúru Íslands. Dæmi um vörur sem hægt er að fá úr þeirri línu eru norðurljós og ljóð eftir Einar Benediktsson. Hin línan, Kvak, er unnin af myndlistarkonunni Guðrúnu Sigurðardóttur, sem er jafnframt móðir okkar,“ segir Lilja Björk.

Ljóð eftir Einar Benediktsson.
Vegglímmiðar hafa notið mikilla vinsælda undanfarið, bæði hér á landi og úti í heimi.

„Vegglímmiðar henta sérstaklega vel í leiguíbúðum þar sem ekki má negla í veggi og svo detta þeir ekki af veggjum eins og getur komið fyrir málverk. Þetta er í raun eins og búið sé að mála verkið á vegginn,“ bætir Lilja Björk við.

Léttfótur, verk eftir Guðrúnu Sigurðardóttur, myndlistarkonu.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu fyrirtækisins, vegg.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.