Tíska og hönnun

Áhrif úr austri hjá Cavalli

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Ítalska tískuhúsið Just Cavalli sýndi haust – og vetrarlínu sína á tískuvikunni í Mílanó í vikunni. Línan var mjög í anda Cavalli, falleg snið og klæðilegar flíkur. Mynstur spiluðu stærsta hlutverkið í sýningunni, en þau voru augljóslega undir asískum áhrifum. Þetta endurspeglaðist einkum í litavali, en túrkisblár, appelsínugulur, rauður og grænn voru áberandi. Línan var falleg og framandi, en jafnframt mjög klæðileg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×