Dwight Howard ætlar að semja við Houston Rockets Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. júlí 2013 00:16 Dwight Howard Mynd/NordicPhotos/Getty
Miðherjinn öflugi Dwight Howard hefur tekið ákvörðun um hvar hann spilar á næsta tímabili í NBA-deildinni í körfubolta. Kappinn ætlar að segja skilið við Los Angeles Lakers og semja þess í stað við Houston Rockets. Howard hefur látið hin félögin sem voru á eftir honum, Lakers, Dallas, Golden State og Atlanta, vita að hann ætli að semja við Houston. Þetta kom fram í bandarískum fjölmiðlum í kvöld. Dwight Howard spilaði aðeins í eitt tímabil með Los Angeles Lakers og náði sér aldrei fyllilega á strik við hlið Kobe Bryant. Hann var að koma til baka eftir uppskurð á baki og meiddist síðan á öxl sem háði honum einnig mikið. Þessar fréttir eru mikið áfall fyrir Los Angeles Lakers sem fórnaði talsverðu til að fá hann í skiptum frá Orlando Magic. Kobe og Howard náðu hinsvegar aldrei saman og það vóg örugglega þungt í ákvörðunatöku hans. Dwight Howard er 27 ára og 211 sm miðherji sem spilaði með Orlando Magic frá 2004 til 2012. Hann var þrisvar valinn besti varnarmaður ársins sem leikmaður Orlando og varð frákastahæsti leikmaður deildarinnar í fimmta sinn á síðasta tímabili. Howard er með 18,3 stig, 12,9 fráköst og 2,2 varin skot að meðaltali á ferlinum í NBA en hann var með 17,1 stig, 12,4 fráköst og 2,4 varin skot að meðaltali með Lakers.
NBA Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira