NBA í nótt: Vængbrotið Bulls-lið skellti meisturunum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. desember 2013 07:54
Meistarar Miami Heat töpuðu óvænt í nótt og þá hafði NY Knicks betur gegn Brooklyn Nets í fyrsta New York-borgarslag tímabilsins.Chicago gerði sér lítið fyrir og vann Miami, 107-87, en fyrrnefnda liðið hafði tapað sex af síðustu sjö leikjum sínum. Liðið er vitaskuld án Derrick Rose sem meiddist á hné fyrir fáeinum vikum síðan og spilar ekki meira þetta tímabilið. Carlos Boozer skoraði 27 stig fyrir Chicago og Luol Deng bætti við 20. Sigurinn var nokkuð þægilegur fyrir Chicago sem náði snemma tökum á leiknum. Forystan varð mest 25 stig í þriðja leikhluta en Miami náði þó að minnka forystuna í tólf stig í þeim fjórða. Nær komst Miami ekki. Leikmenn Bulls settu niður tíu af nítján þriggja stiga tilraunum í leiknum og tóku 49 fráköst alls en leikmenn Miami aðeins 27. LeBron James skoraði 21 stig fyrir meistarana en þetta var annað tap Miami í röð.New York Knicks vann Brooklyn Nets, 113-83. Knicks hafði tapað níu leikjum í röð og var því sigurinn í nótt kærkominn. Carmelo Anthony var með nítján stig og tíu fráköst fyrir Knicks en Brook Lopez með 24 stig og níu fráköst fyrir Brooklyn. Bæði lið borgarinnar hafa verið slök í vetur og samanlagt aðeins unnið níu af 36 leikjum sínum á tímabilinu.LA Clippers vann Memphis, 101-81, þar sem varamennirnir Darren Collison og Jamal Crawford skoruðu fimmtán stig hvor fyrir sigurliðið. Chris Paul var einnig með fimmtán stig en bætti við átta stoðsendingum.Úrslit næturinnar: Brooklyn - New York 83-113 Memphis - LA Clippers 81-101 Chicago - Miami 107-87
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira