Innlent

Mega vera úti til klukkan tíu

Breyttur útivistartími tók gildi í gær. Nú mega börn vera úti til tíu en unglingar til tólf. Fréttablaðið/pjetur
Breyttur útivistartími tók gildi í gær. Nú mega börn vera úti til tíu en unglingar til tólf. Fréttablaðið/pjetur
Útivistartími barna og unglinga tók breytingum í gær. Nú mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 22.00. Unglingar, 13 til 16 ára, mega vera úti til klukkan 24.00.

Börn mega ekki vera á almannafæri utan þess tíma nema í fylgd með fullorðnum. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu og miðast aldur við fæðingarár.

Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er meðal annars ætlað að tryggja nægan svefn, en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn hverja nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×