Dóttir Magnúsar Scheving keppir við lærimeistarann 11. janúar 2013 13:30 Sylvía Erla er vön sviðsljósinu eftir að hafa stundum fengið að fylgja pabba sínum. Mynd/Kristófer Scheving „
Pabbi hefur verið í sviðsljósinu síðan ég var lítil og þegar ég var yngri fékk ég stundum að fylgja honum á sviðið, annaðhvort í búningi Sollu stirðu eða bara sem ég sjálf,“ segir Sylvía Erla Scheving, sextán ára dóttir Magnúsar Scheving, sem flytur lagið Stund með þér í Söngvakeppninni í ár. Það er María Björk Sverrisdóttir sem semur lagið og textann en Sylvía er nemi í söngskóla hennar. „Ég byrjaði að syngja þegar ég var mjög lítil og fékk æfingaraðstöðu í bílskúrnum heima. Ég byrjaði svo að læra söng hjá Birgittu Haukdal þegar ég var tólf ára og fór yfir til Maríu Bjarkar þegar hún flutti út. Þar fyrir utan hef ég lært klassískan söng hjá Alinu Dubik síðastliðin tvö ár,“ segir Sylvía Erla. Birgitta Haukdal flytur einnig lag í keppninni í ár og segir Sylvía vissulega furðulegt að keppa við lærimeistarann. „Ég er samt enn þá að átta mig á því. Þetta er algjör draumur og þvílíkur heiður að fá að standa á sama sviði og þessar stórstjörnur sem eru að taka þátt,“ segir hún. „Ég hef verið að syngja síðan ég man eftir mér en þetta er í fyrsta skipti sem ég kem opinberlega fram, svo það er mjög spennandi. Ég er mjög þakklát Maríu Björk fyrir að treysta mér fyrir laginu sínu,“ bætir hún við. -trs
Mest lesið Svala slær sér upp Lífið Allt í einu orðin mamman sem missti barnið sitt Lífið Biðu hjálpar í tíu klukkustundir í flugvélabraki Lífið Erfitt að geta aldrei hlakkað til neins Lífið Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Menning Kemur út úr skápnum tveimur árum eftir andlát sitt Lífið Enginn þreyir þorrann eins og Áslaug Arna Lífið Guinness-æðið sem gert hefur íslenska djammara að þjófum Lífið Svona var umhorfs í Reykjavík á áttunda áratugnum Lífið Sjónvarpsbarn komið í heiminn Lífið Fleiri fréttir Sýni þörfina fyrir nándarráðgjafa „Er Sophia dauður?“ Eik tók hæð við Rauðalæk í gegn Heitasta fólk Kópavogs blótaði þorrann á stærsta þorrablótinu Hreyfði sig í 30 mínútur á hverjum einasta degi í heilt ár Lauk náminu á sterkasta hugvíkkandi efni jarðar Stjörnulífið: Seiðandi kroppar og bóndadagurinn Þorir loksins að hlusta á útvarpið í bíl mömmu sinnar Ný mynd um Jackson í uppnámi vegna dómsáttar frá 1993 „Það hafa fallið mörg tár hérna baksviðs í dag“ Víbradorar á víðavangi og nærbuxnalausar konur Myndaveisla: Fjölmennt í níræðisafmæli skákgoðsagnar Ekki ætlunin að nýja merkið komi í stað fálkans Áhrifamesti Íslendingur skáksögunnar níræður Svala slær sér upp Svona var umhorfs í Reykjavík á áttunda áratugnum Erfitt að geta aldrei hlakkað til neins Krakkatían: Páskar, dýravinir og Star Wars Biðu hjálpar í tíu klukkustundir í flugvélabraki Enginn þreyir þorrann eins og Áslaug Arna Bellingham kominn með bandaríska kærustu Kemur út úr skápnum tveimur árum eftir andlát sitt Sjónvarpsbarn komið í heiminn Guinness-æðið sem gert hefur íslenska djammara að þjófum Fréttatía vikunnar: Hótelbruni, Trump og YouTube Allt í einu orðin mamman sem missti barnið sitt Stærsta þorrablót landsins Fann ástina og setur íbúðina á sölu Fallegustu bækur í heimi eru í Garðabæ Brilljant hugmyndir fyrir bóndadaginn Sjá meira