Tónlist

Daft Punk með plötu í vor

Franska dansdúóið gefur út nýja plötu í vor.
nordicphotos/getty
Franska dansdúóið gefur út nýja plötu í vor. nordicphotos/getty
Daft Punk hefur samið við útgáfuna Columbia og mun gefa út fjórðu plötu sína í vor. Franska dansdúóið var áður á mála hjá Virgin sem það samdi við árið 1996.

Orðrómur hefur verið uppi um að hljómsveitin ætli að spila á Coachella-hátíðinni í apríl en samkvæmt upplýsingum úr herbúðum hennar ætlar hún ekki á tónleikaferð á þessu ári. Síðasta plata Daft Punk er Human After All sem kom út 2005. Fyrir þremur árum kom einnig út tónlist sveitarinnar við myndina Tron: Legacy.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.