Viðskipti innlent

Lífeyrissjóðir bara á eftir slitastjórn Glitnis

Fimm lífeyrissjóðir hafa farið fram á það við Héraðsdóm Reykjavíkur að Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson endurgreiði meintan ofgreiddan launakostnað.
Fimm lífeyrissjóðir hafa farið fram á það við Héraðsdóm Reykjavíkur að Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson endurgreiði meintan ofgreiddan launakostnað. Fréttablaðið/GVA
Lífeyrissjóðir í hópi kröfuhafa gömlu bankanna hafa ekki gert athugasemdir við launakostnað hjá slitastjórnum Kaupþings og LBI. Fimm sjóðir telja að laun hafi verið ofgreidd hjá slitastjórn Glitnis.

Kröfuhafar Kaupþings og LBI, gamla Landsbankans, hafa engar athugasemdir gert við launakostnað hjá slitastjórnum bankanna. Gerð hefur verið ítarleg grein fyrir launakostnaði slitastjórnanna á kröfuhafafundum bankanna.

Þetta kemur fram í svörum fulltrúa þrotabúanna við fyrirspurn Markaðarins um málið. Fréttablaðið greindi frá því á laugardag að fimm lífeyrissjóðir í hópi kröfuhafa Glitnis teldu að Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson, sem sitja í slitastjórn bankans, hefðu oftekið sér ríflega 400 milljónir króna í laun fyrir störf sín og sinna fyrirtækja fyrir þrotabú bankans.

Hafa lífeyrissjóðirnir farið fram á það að Héraðsdómur Reykjavíkur sjái til þess að þrotabúin fái endurgreitt meintan oftekinn launakostnað. Í viðtali við Vísi á laugardag sagði Steinunn hins vegar að það væri alrangt hjá sjóðunum að launakostnaður hefði verið óeðlilega hár. Þá sagði hún tímagjald hjá slitastjórninni mjög sambærilegt við tímagjald hjá öðrum slitastjórnum landsins.

Krafa sjóðanna var sett fram eftir að tveir þeirra, Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Gildi lífeyrissjóður, fengu sundurliðun á launakostnaði Glitnis afhenta í haust eftir nokkuð þóf. Kom þar fram að samanlagt námu greiðslur til Steinunnar og Páls, að viðbættum greiðslum vegna útseldrar vinnu fulltrúa á þeirra vegum, 842 milljónum króna frá því að slitastjórnin var skipuð í maí 2009 og fram á mitt ár 2012.

Loks kom fram í svörum við fyrirspurn Markaðarins að samið hefði verið um langflestar kröfur lífeyrissjóða á hendur Kaupþingi og LBI án aðkomu dómstóla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×