Gott fyrir sálartetrið að hreinsa til 1. mars 2013 10:45 Sigrún Edda Eðvarðsdóttur, fyrrverandi verslunarstýra í KronKron, lofar mörgum gullmolum og góðri stemmingu á fatasölunni á Kexi hosteli um helgina en síðustu vikur hefur hún verið að fara í gegnum fataskápinn og segir heimilið undirlagt af kjólum og skóm. "
Ef maður hefur ekki notað fötin í hálft ár til ár þá er kominn tími til að leyfa öðrum að njóta,“ segir Sigrún Edda Eðvarðsdóttir, fyrrverandi verslunarstýra í KronKron, sem er ein af þeim sem standa fyrir fatasölu á Kexi hosteli á morgun. Sigrún hefur fengið til liðs við sig góðan hóp af fólki en alls munu níu manns standa vaktina allan morgundaginn og selja gullmola úr fataskápum sínum. Á boðstólum verða kvenmanns-og karlmannsföt, barnaföt, fylgihlutir og aðrir munir. Sigrún segist allajafna vera ein af þeim sem sitja á flíkum of lengi án þess að nota þær og hefur ekki tímt að selja fyrr en núna. "Ég er búin að vera hörð við sjálfa mig og hef látið margt fjúka í fatasöluna. Þegar maður hefur verið að vinna í þessum fatageira í langan tíma sankar maður að sér ýmsu, sumt er meira að segja enn þá með verðmiðanum á,“ segir Sigrún og bætir við að það sé mjög gott fyrir sálartetrið að hreinsa til. "Maður kemst að ýmsu um sjálfan sig á meðan maður fer í gegnum fataskápinn. Ég hef til dæmis komist að því að ég hef tilhneigingu til að kaupa mér pils sem ég nota svo aldrei. Verð með að minnsta kosti þrjú stykki sem eru enn þá með verðmiðanum á til sölu.“ Það verður því mikið um dýrðir á morgun á Kexi hosteli fyrir fataunnendur en Sigrún lofar smekkfatnaði og merkjavöru í bland við annað. "Ég verð til dæmis með Miu Miu skó frá árinu "97 sem ættu að falla í kramið hjá einhverjum enda lýsa þeir því tímabili í tískunni vel. Ég er ekki búin að verðleggja allt en verðið verður á breiðum skala, margt ódýrt en annað kannski aðeins dýrara. Þetta verður stuð.“ Markaðurinn verður í salnum Gym & Tonic á Kexinu og byrjar klukkan 12 á morgun. Hægt er að fylgjast nánar með á Facebook-síðu markaðarins. Kron by Kronkron skór.Þessi eru að selja fötin sín á Kexinu á morgun: Sigrún Edda Eðvarðsdóttir Bára Hólmgeirsdóttir Stefán Svan Aðalheiðarson Svanhildur Einarsdóttir Hildur Björk Yeoman Rósa Birgitta Ísfeld Sæunn Þórðardóttir Melkorka Huldudóttir Ragnheiður Helen Eðvarðsdóttir Fallegur Kron by Kronkron kjóll.Litríkur kjóll frá dönsku merki.Klassískur Soniu Rykiel-kjóll.
Mest lesið Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Lífið Bannað að ræða fótbolta og heimilisfjármálin á stefnumótum Makamál Smakkaði skötu í beinni: „Sjitturinn, kött!“ Matur Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna Bíó og sjónvarp Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Fleiri fréttir Tískuheimurinn í London setti sterkan svip á stílinn „Í smávegis vegferð að líta á ADHD-ið mitt sem fallegan hlut“ Myndaveisla: Aron Can, Issi og Patti í tískupartýi ársins Alltaf sótt í orku og gleði í klæðaburði Vann til margra verðlauna fyrir stól sem slær í gegn „Með 40 prósent af óþarfa með mér og virðist ekki læra af því“ „Ekki fylgja hverju einasta tískutrendi“ Enn að ná sér niður eftir að hafa hitt Miuccia Prada Leyfir bumbunni að njóta sín á meðgöngunni Sjóðheit trend beint af tískupallinum í París Skvísuviðburður þar sem hátískuflíkum rigndi yfir gesti Þotulið listagyðja fögnuðu að sænskum stíl „Ef ég væri ekki prestur væri gaman að vera poppstjarna“ „Mér þykir alltaf vænt um hlutina mína“ Líður bókstaflega óstöðvandi í góðu fitti Ofurskvísur landsins fögnuðu „Heiðarlegri“ fatalínu Heiðar Klæðir sig oft óbeint í stíl við dóttur sína „Tilfinningaþrungið að fá að fylgja myndinni í flík sem þessari“ Sjá meira