Innlent

Geirfinnsmálið lýkst upp í dag

Stígur Helgason skrifar
Starfshópur innanríkisráðherra um Guðmundar- og Geirfinnsmálið hefur skilað skýrslu sinni til ráðherra. Hún verður kynnt á blaðamannafundi í ráðuneytinu í dag klukkan 14.00.

Hópurinn var skipaður til að fara yfir öll gögn málsins á nýjan leik, bæði málsgögn og annað sem kann að skipta máli, og fara svo yfir málið í heild sinni. Ekki síst var hlutverk hans að kanna hvort eitthvað hefði aflaga farið við rannsókn þess. Honum var jafnframt falið að meta hvort tilefni væri til einhverra aðgerða í kjölfarið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×