Golf

Tiger eða Sergio Garcia munu klæðast græna jakkanum

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Páll Axel Vilbergsson varð Íslandsmeistari í körfuknattleik með Grindavík á síðustu leiktíð.
Páll Axel Vilbergsson varð Íslandsmeistari í körfuknattleik með Grindavík á síðustu leiktíð.
Körfuknattleiksmaðurinn Páll Axel Vilbergsson hefur mesta trú á því að Tiger Woods fari með sigur á Masters. Gunnar Hanson tippar á sigur Spánverjans Sergio Garcia.

Páll Axel er mikill aðdáandi Tiger Woods. Hann þefar uppi allar beinar útsendingar frá þeim mótum sem Woods leikur í en áhuginn dvínar ansi hressilega þegar Woods er ekki með. Páll Axel spáir Woods öruggum sigri á Masters í ár.

„Ég er rosalegur Tiger-maður. Ég sit límdur við skjáinn þegar hann er að keppa. Tiger er búinn að vera í uppsveiflu og hrista af sér persónuleg vandamál. Það mun hjálpa honum að hann tók sér frí fyrir mótið og kemur mjög ferskur og hungraður inn í mótið. Ætli að hann verði ekki með 5-6 högga forystu fyrir lokadaginn og svo klárar þetta örugglega,“ segir Páll Axel, sem á ekki von á óvæntum úrslitum.

„Það getur auðvitað allt gerst og það hafa nöfn unnið þetta mót sem maður hafði aldrei heyrt um. Ég held hins vegar að þetta verði árið hans Tigers. Það verða samt þekkt nöfn í næstu sætum fyrir neðan og kæmi mér ekkert á óvart ef það væru bara stórstjörnur í lokaráshópunum á sunnudag.“

Leikarinn Gunnar Hansson er liðtækur kylfingur en hann er með í kringum fjóra í forgjöf. Gunnar ætlar ekki að láta Mastersmótið fram hjá sér fara og hefur mikið dálæti af mótinu. Hann segir að erfitt verði að horfa fram hjá Tiger Woods í ár og að hann sé mjög sigurstranglegur.

„Það eru mestar líkur á að Tiger vinni þetta. Hann hefur verið frábær í ár og er kominn með blóðið á tennurnar. Það væri auðvelt að veðja á hann. Rory McIlroy gæti einnig náð góðum árangri. Hann varð í öðru sæti um síðustu helgi og þó að hann hafi ekki verið að spila eins vel og í fyrra þá gæti hann alveg unnið. Það eru alveg 25 kylfingar sem koma til greina,“ segir Gunnar. Hann ætlar þó að veðja á sinn uppáhaldskylfing til sigurs í ár.

„Sergio Garcia hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér og það er rosalega gaman að sjá hann spila. Hann fór í niðursveiflu fyrir nokkrum árum og virtist ekki hafa sjálfur gaman af þessu. Það er allt annað að sjá til hans núna og hann hefur verið góður síðustu mánuði. Það er kannski frekar óskhyggja en eitthvað annað að hann vinni. Það væri leiðinlega skynsamlegt að veðja á Tiger og því segi ég Garcia.“

Bein útsending frá fyrsta keppnisdeginum á Masters hófst á Stöð 2 Sport HD klukkan 19 í kvöld.


Tengdar fréttir

Búist við gífurlega hröðum flötum

Þorsteinn Hallgrímsson og myndatökumaðurinn Friðrik Þór Halldórsson hafa undanfarna daga dvalið í Georgíu og fylgst með aðdraganda Masters-mótsins á Augusta National-vellinum.

Tiger eða Dustin vinna Masters

Ólafur Björn Loftsson telur að Tiger Woods fari með sigur í fimmta skipti á Masters. Fjölmiðlamaðurinn Heimir Karlsson telur hins vegar að Dustin Johnson muni koma, sjá og sigra.

Klæðist heilsuhraustur Tiger græna jakkanum í fimmta sinn?

Tiger Woods er sá kylfingur sem flestir veðja á í aðdraganda Masters-mótsins í ár. Hann er á ný í efsta sæti heimslistans í golfi eftir að hafa unnið þrjú mót í PGA-mótaröðinni í ár og er í góðu formi fyrir fyrsta risamót ársins.

14 ára undrabarn leikur á Masters

Fjórtán ára gamall drengur frá Kína mun skrá nafn sitt í metabækurnar á Masters-mótinu í ár þegar hann verður yngsti kylfingurinn í sögu mótsins til að taka þátt.

Bauð upp á kjúkling

Ein af hefðum Masters-mótsins er kvöldverður meistaranna en þar koma saman fyrrverandi sigurvegarar í mótinu og snæða saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×