Lífið

Justin Bieber er kominn aftur á Twitter

Popparinn hefur snúið aftur á Twitter.
Popparinn hefur snúið aftur á Twitter.

Justin Bieber hefur snúið aftur á Twitter eftir að hafa tekið sér frí frá samskiptasíðunni fyrir viku síðan. „Söknuðuð þið mín? Ég þurfti bara smá frí fyrir sjálfan mig,“ skrifaði popparinn.

Hann notaði tækifærið og minntist á vin sinn Jaden Smith og nýjustu kvikmynd hans, After Earth. „Þið verðið að horfa á nýju myndina hans um helgina,“ sagði hann.

Bieber hefur í nógu að snúast í sumar því hann hefur verið bókaður á fjölda tónleika í Bandaríkjunum og Kanada þangað til í ágúst.

Tónlistarmaðurinn Usher, sem hjálpaði Bieber að slá í gegn, hefur komið popparanum til varnar vegna alls kyns uppátækja hans sem hafa ratað í fréttirnar. Nýlega var hann sagður hafa brunað á Ferrari-sportbíl sínum um Kaliforníu langt yfir hámarkshraða.

„Hann er unglingur sem þarf að lifa lífi sínu fyrir framan myndavélar. Ímyndið ykkur ef þið hefðuð þurft að gera það þegar þið voruð á þessum aldri,“ sagði hann um hinn 19 ára Bieber.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.