Sport

NFL-lið vill fá Beckham

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Beckham kann þá list betur en flestir að sparka bolta.nordicphotos/getty
Beckham kann þá list betur en flestir að sparka bolta.nordicphotos/getty
David Beckham lagði knattspyrnuskóna á hilluna á dögunum og hefur nú snúið sér að öðrum verkefnum. Beckham er einn besti spyrnumaður sögunnar og það þarf því ekki að koma á óvart að lið í NFL-deildinni hafi leitað til hans og spurt út í áhuga hans á því að verða sparkari í NFL-deildinni.

Engum sögum fer af því hvort Beckham vilji reyna fyrir sér í vinsælustu íþrótt Bandaríkjanna.

Margir knattspyrnumenn hafa reynt að komast í NFL-deildina. Þeirra á meðal er fyrrverandi markvörður bandaríska landsliðsins, Tony Meola, en hann hafði ekki erindi sem erfiði á sínum tíma enda er það erfiðara en margur heldur að sparka í boltann sem notaður er í íþróttinni.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×