Góðar líkur á að liðið verði eins skipað Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. júlí 2013 06:30 Auk Guðmundar léku Andri Þór Björnsson og Haraldur Franklín Magnús úr GR, Axel Bóasson og Rúnar Arnórsson úr GK og Ragnar Már Garðarsson úr GKG fyrir Íslands hönd. Fréttablaðið/Anton „
Ég er virkilega sáttur með að komast áfram. Það var aðalmarkmiðið,“ segir Guðmundur Ágúst Kristjánsson, kylfingur úr GR. Guðmundur var einn sex kylfinga sem spiluðu fyrir hönd Íslands á móti tíu þjóða sem lauk í Tékklandi um helgina. Ísland hafnaði í öðru sæti og tryggði sér þátttökurétt á Evrópumót áhugamanna á næsta ári. Munaði um draumahring Guðmundar, sem var í banastuði á þriðja og síðasta hringnum. „Það gekk vel fyrir innan 120 metrana,“ segir Guðmundur, sem fékk sex fugla á hringnum. Þar af voru allar fjórar par fimm holurnar. Hann spilaði á sex undir pari, best allra á lokahringnum. „Auðvitað kitlar það egóið. Ég tel samt að við hefðum getað gert mun betur í þessu móti. Það sést á skorinu að við bættum okkur á milli daga,“ segir Guðmundur. Belgar höfnuðu í fyrsta sæti en Ísland hafði meðal annars betur en Rússar, Tyrkir og Ungverjar. „Það er ekkert slæmt að vera að gefa Belgum smá samkeppni. Þeir eru náttúrulega virkilega góðir og með kylfinga bæði á Evrópumótaröðinni og á PGA-mótinu,“ segir Guðmundur Ágúst. Annað sætið gefur Íslandi þátttökurétt í úrslitakeppninni í Finnlandi á næsta ári. Þrátt fyrir góðan árangur sexmenninganna er ekki sjálfgefið að þeir verði fulltrúar Íslands í lokakeppninni. „Við verðum að vinna okkar sæti í landsliðinu eins og í öðrum íþróttum. Við erum með ungt lið, enginn sem ætlar að gerast atvinnumaður á næsta ári, þannig að það eru alveg góðar líkur á að liðið verði eins skipað.“ Birgir Leifur Hafþórsson gegndi hlutverki liðsstjóra Íslands á mótinu. Hann sagði hvasst hafa verið í Tékklandi en það hefði ekkert hjálpað íslensku kylfingunum frekar að vera vindinum vanir. „Nei, alls ekki. Ég held að gæði kylfinganna hafi sýnt sig þarna. Þessir strákar eru orðnir svo tæknilega góðir og höndla orðið hvaða aðstæður sem er,“ sagði Birgir Leifur. Það hafi sýnt sig á lokahringnum þegar veðrið var best að þá spilaði Ísland best.
Golf Mest lesið Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Körfubolti Dagmar ofuramma og heimsmethafi: „Maður springur bara út“ Sport Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Enski boltinn „Vafasamir dómar sem féllu gegn okkur í þessu einvígi“ Fótbolti Carlsen selur heimsfrægu gallabuxurnar Sport Bætti skólamet pabba síns Körfubolti „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Handbolti Dómarinn sagður hafa beðið um treyju Messi eftir leik Fótbolti Orri Steinn skoraði þegar Sociedad sparkaði Midtjylland úr keppni Fótbolti Undrið Wembanyama frá það sem eftir lifir leiktíðar Körfubolti Fleiri fréttir Hlógu að Tiger: Eitt það vandræðalegasta á ferlinum Tiger Woods dregur sig úr keppni á sínu eigin móti Tiger snýr aftur á PGA-mótaröðina Opna bandaríska fyrsta risamótið til að opna dyrnar fyrir LIV Tiger syrgir móður sína Gunnlaugur í besta sæti Íslendings Lék Lo Romero völlinn á 58 höggum og sjáðu hann enda á svakalegu höggi Vann undrabarnið og braut blað í íslenskri golfsögu Gunnlaugur vann en Evrópa tapaði Allt jafnt fyrir lokadaginn Sögufrægur golfvöllur í hættu vegna eldanna í Los Angeles Kylfurnar eftir í Amsterdam en Gunnlaugur nýtur sín meðal þeirra bestu Sjóðheitur Gunnlaugur tryggði Evrópu einn sigur Slógu golfbolta hvors annars og misstu af milljónum Sjá meira