Berin þroskuð um miðjan ágúst Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 29. júlí 2013 06:00 Bláber í Eyjafirði eins og þau litu út á fimmtudag.
Horfur á berjasprettu eru góðar, að mati Emilíu Rafnsdóttur, leikskólakennara og berjavinar, sem kannað hefur stöðuna í Borgarfirði og Eyjafirði. „Það lofar mjög góðu með bláberin en þau verða þó ekki orðin almennilega þroskuð fyrr en um miðjan ágúst í landi sem ég á við Munaðarnes. Í hittifyrra var ég farin að tína bláber þar í lok júlí. Núna verður kannski hægt að fara aðeins fyrr í ber fyrir norðan en í Borgarfirðinum. Grænjaxlarnir á bláberjalynginu ofan við Kristnes í Eyjafirði eru aðeins farnir að taka lit.“ Emilía gerir ráð fyrir að vegna rigningartíðar á suðvesturhorninu í sumar verði bláberin þar ekki orðin nógu góð til tínslu fyrr en í lok ágúst. „En ég hef samt aldrei skilið það viðhorf að ekki megi fara of snemma af stað. Það er til nóg af berjum í landinu og núna geta börn til dæmis alveg farið að tína krækiber þótt þau séu smá. Það er svo gott að vera úti í náttúrunni.“Emilía RafnsdóttirSjálf kveðst hún helst tína bláber, bæði í Borgarfirði og í Brynjudal í Hvalfirði. „Ég fer svo stundum í sérferðir norður í aðalbláber. Ég tíni aldrei mikið þar sem ég tíni með höndunum en alveg nóg til þess að eiga í frysti allan veturinn.“ Á vefnum berjavinir.com er hægt að fylgjast með fréttum af berjasprettu.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira