Bíó og sjónvarp

Miðasala á RIFF hefst á morgun

Undirbúningur hefur verið í fullum gangi fyrir RIFF-kvikmyndahátíðina.
Undirbúningur hefur verið í fullum gangi fyrir RIFF-kvikmyndahátíðina. fréttablaðið/pjetur
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, RIFF, hefst fimmtudaginn 26. september með frumsýningu á nýrri íslenskri mynd, Svona er Sanlitun, í leikstjórn Róberts Douglas.

Hátíðinni, sem er sú tíunda í röðinni, lýkur 6. október með sýningu Lífs Adele, sem fékk Gullpálmann í Cannes.

Miðasala hefst á morgun, fimmtudag, á Riff.is. Hátíðin hefur stækkað ört á undanförnum árum og fara sýningar fram í stórum sölum í Háskólabíói, Tjarnarbíói og í Norræna húsinu. Auk þess verður kvikmyndadagskrá RIFF úti um alla borg í litlum verslunum, á hárgreiðslustofum og hótelum undir nafninu RIFF Around Town. Þá teygir verkefnið RIFF úti á landi sig út um allt Ísland.

Margar glænýjar myndir verða sýndar á hátíðinni eftir þekkta leikstjóra á borð við Jonathan Demme og Lukas Moodysson. Einnig verða sýndar framsæknar myndir eftir nýja leikstjóra sem keppa um Gyllta lundann.

Á meðal mynda í ár eru Nestisboxið, sem sló í gegn á Cannes-hátíðinni í vor, Aðeins elskendur eftirlifandi eftir Jim Jarmusch og Snertur af synd eftir hinn kínverska Jia Zhangke. Einnig verða fimm grískar myndir sýndar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×