AGF finnur sér nýjan Marka-Aron Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. október 2013 10:30 Nýr marka-aron Víkingurinn Aron Elís Þrándarson. Mynd/Arnþór
Aron Jóhannsson sló í gegn hjá danska félaginu AGF á sínum tíma og var síðan seldur til hollenska liðsins AZ Alkmaar þar sem hann raðar inn mörkum. Danirnir telja sig vera búnir að finna uppskriftina því þeir eru búnir að finna annan Aron. Líkt og þegar þeir fengu Aron frá b-deildarliði Fjölnis þá sækja þeir nýja Aroninn í íslensku b-deildina. Aron Elís Þrándarson, sem er 19 ára gamall, skoraði 14 mörk í 14 leikjum með Víkingum í 1. deildinni í sumar og átti mikinn þátt í því að Fossvogsliðið vann sér sæti í Pepsi-deildinni á ný. Aron skoraði 12 mörk í 18 leikjum fyrir Fjölni í b-deildinni sumarið 2010, sitt síðasta tímabil á Íslandi. Báðir voru þeir markahæstir í deildinni. Magnús Agnar Magnússon, er umboðsmaður Arons Elísar en hann er einnig umboðsmaður Arons Jóhannssonar. „AGF hefur verið á Íslandi og séð hann spila. Þeir voru búnir að ákveða það fyrir löngu að bjóða honum til Danmerkur svo þeir gætu skoðað hann betur,“ sagði Magnús Agnar við tipsbladet.dk. „Aron Elís er meiri tía en Aron Jóhannsson og er því að skora mörkin sín á annan hátt. Hann er hávaxinn, örvfættur og er mjög góður leikmaður. Allir stóru klúbbarnir á Íslandi vildu fá hann til sín,“ segir Magnús Agnar.
Fótbolti á Norðurlöndum Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Fleiri fréttir Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fram fær liðsstyrk úr Breiðholti „Þetta er dýrmætur tími og maður finnur hvað þetta skiptir mann miklu máli“ Gísli Gottskálk verðlaunaður með nýjum samningi Efast um dugnað og hugarfar Rashford Börsungar bannaðir í Belgrad vegna nasistafána Tímabilið búið hjá Rodri Hermann hættur með ÍBV Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Bestu guttarnir í Bestu deild karla Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjá meira