Verður ekki leitað á þingmönnum og starfsmönnum Brjánn Jónasson skrifar 23. desember 2013 06:00 Öryggisgæsla á Alþingi var hert í kjölfar atviks þar sem maður skaðaði sig með málmáhaldi fyrir um ári síðan. Fréttablaðið/gva
Alþingi hefur hert öryggisgæslu í byggingum þingsins, og mun á næstunni festa kaup á málmleitartæki til að tryggja að gestir komist ekki inn á þingpalla með málmhluti án þess að gera grein fyrir þeim, segir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis. Þessi þróun á sér nokkurn aðdraganda, en skömmu fyrir jól í fyrra vann maður sér tjón á salerni þingsins með beittu áhaldi sem hann kom með inn í húsið. „Eftir þetta atvik brugðumst við við með ýmsum hætti,“ segir Helgi. „Það er meiri öryggisgæsla hér en áður. Hann segir að á nýju ári verði hugað að því að kaupa málmleitartæki sem allir gestir þurfi að ganga í gegnum. Hann segir þó að ekki standi til að þingmenn og starfsmenn þingsins þurfi að fara í gegnum hliðið. Það væri erfitt í framkvæmd þar sem starfsemi Alþingis sé í mörgum byggingum og bæði starfsmenn og þingmenn komi og fari oft á dag. Helgi segir ekki komið í ljós hver kostnaður þingsins verði við að koma sér upp málmleitarhliði. Kostnaðurinn verði þó varla meiri en ein til tvær milljónir króna, og rúmist vel innan fjárheimilda þingsins. „Við munum gera svipaðar ráðstafanir og gerðar eru í öðrum þjóðþingum allsstaðar í kringum okkur, þannig að menn fari ekki hér inn með málmhluti án þess að hægt sé að skoða það,“ segir Helgi.
Mest lesið Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Innlent Sigmundi vísað úr VMA eftir að hann krotaði á varning annarra flokka Innlent Samfylkingin bætir við sig í fyrsta sinn síðan í maí og Píratar úti Innlent „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Innlent „Ég ætla ekki að vera föst á þessum Klausturbar“ Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Fleiri fréttir „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Boða verkföll í tíu leikskólum í desember Í beinni frá gosstöðvum, undrun á vegferð seðlabankans og lokasprettur Atburðarás gærdagsins í myndum Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Virkni í þremur gígum og mest í miðjunni Mikill meirihluti vill ekki sjá sjókvíaeldi í Seyðisfirði Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi FA klagar Willum Þór til umboðsmanns Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Bílar og byggingariðnaður losar mest í Reykjavík „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Rokk og ról í Rockville holunni frestast fram í janúar Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni Gist í um tuttugu húsum í Grindavík Njarðvíkuræðin heldur sem stendur og vaxtakjörin útskýrð á mannamáli Útkall vegna reyks við Borgarholtsbraut Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Meirihluti styður verkfallsaðgerðir kennara Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Hótaði heimilismönnum með skærum Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Sjá meira