Innlent

Gunna Dís spennt fyrir kvöldinu

Boði Logason skrifar
Gunnar Dís er spennt fyrir kvöldinu
Gunnar Dís er spennt fyrir kvöldinu
„Það eru búnar að vera æfingar í allan dag og allt búið að ganga eins og í sögu," segir Guðrún Dís Emilsdóttir, betur þekkt sem Gunna Dís, sem mun kynna Söngvakeppni sjónvarpsins í kvöld ásamt Þórhalli Gunnarssyni.

Í kvöld fer fram annað undanúrslitakvöldið tveimur, en það síðara fer fram annað kvöld. Gunna Dís segir að í kvöld sé nóg um að vera. „Þetta byrjar með svakalegu trukki kvöld þar sem Magni, Jóhanna Guðrún, Birgitta Haukdal, Eyþór Ingi, Svavar Knútur og Hreindís og Edda Viðars, stíga á stokk," segir hún.

„Þetta eru allt reynsluboltar í faginu, þetta verður eitthvað," segir hún kát.

Hraðfréttamennirnir, Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson, stíga einnig á stokk og verða með upphitunarþátt fyrir keppni. „Þeir eru hressir á því og búnir að tína alls konar gamalt dót til eins og þeim einum er lagið," segir hún.

Undankeppnin hefst á RÚV á slaginu 20 en upphitunarþátturinn hefst 19:40.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×