
Nú klóra þeir sér í höfðinu
Þeir voru í engum vafa um að Grikkland myndi annaðhvort fara úr sambandinu eða verða rekið á dyr. Þetta voru miklar dómsdagsspár. Á þeim var reist krafan um að Ísland drægi aðildarumsókn sína til baka. Dómsdagur rann hins vegar ekki upp. Í miðjum krappasta dansi sem myntbandalagið hefur lent í með evruna styrktist hún, ekki bara á móti dollar heldur líka gagnvart íslensku haftakrónunni. Hvort ætli það segi meiri sögu um evruna eða krónuna?
Að þessu virtu er ekki nema von að úti í móum andstöðunnar hafi menn klórað sér í höfðinu upp á síðkastið. Það hefur aftur leitt til þess að sannfæringin um brotthvarf Breta úr Evrópusambandinu er nú orðin jafn sterk og hún var fyrir útgöngu Grikkja fyrir ári. Verkurinn er bara sá að það er engum málstað hollt til lengdar að skipta um röksemdir jafn títt og vindáttin breytist.
Evrópa hefur sannarlega eins og aðrir heimshlutar glímt við skuldavanda. Og fjarri lagi er að hann sé úr sögunni þó að vísbendingar gefi ástæðu til að ætla að mönnum auðnist hægt og bítandi að ná tökum á viðfangsefninu.
Vegna þessa alþjóðlega skuldavanda voru þegar í fyrra ástæður til að gera nýtt tímaplan fyrir aðildarviðræður Íslands. Hann var aftur á móti ekki tilefni viðræðuslita. En athyglisvert er að ársgömul hræðsluröksemd fyrir þeim málstað skuli ekki vera brúkleg lengur.
Hvað næst?
Ríkisstjórnin hefur nú ákveðið að fram til kosninga verði engar pólitískar ákvarðanir teknar varðandi þá fjóra kafla í viðræðunum þar sem raunverulega reynir á samninga. Tæknileg vinna heldur hins vegar áfram. Þetta er í sjálfu sér eðlileg ráðstöfun vegna ytri aðstæðna. Engum dylst þó að ágreiningur stjórnarflokkanna hefur ráðið mestu hér um.
Æskilegt hefði verið að slíkri ákvörðun fylgdi nýtt tímaplan. Jafnframt hefði þurft að stofna til hagfræðilegrar skoðunar á samhæfingu aðgerða í ríkisfjármálum, launamálum, peningamálum og sjávarútvegsmálum. Án heildstæðra markmiða á þessum sviðum er aðild að myntbandalaginu ekki möguleg og forsendur fyrir útflutningsvexti veikar. Brýn þörf er því á dýpri pólitískri stefnumörkun en átt hefur sér stað. Þar hefur forysta ríkisstjórnarinnar brugðist.
Rétt hefði verið að skoða þann möguleika að samþykkja þingsályktunartillögu um nýtt tímaplan og undirbúning að þeirri nýju samræmdu efnahagsáætlun sem nauðsynleg er. Síðan hefði mátt gera gildistöku ályktunarinnar háða samþykki þjóðarinnar í sérstakri atkvæðagreiðslu samhliða alþingiskosningum. Þannig hefðu stjórnvöld lagt línur um hvernig flytja ætti málið milli kjörtímabila og þjóðin fengið tækifæri til að samþykkja slíka málsmeðferð eða hafna.
Það var hyggilegt af utanríkisráðherra að leggja á ráðin um að halda sjó um stund. En eftir stendur að þeirri spurningu er ósvarað: Hvað næst? Hvert verður fyrsta boðorðið?
Andstæðingar aðildar hafa réttilega bent á að Samfylkingin gæti útilokað sjálfa sig frá stjórnarþátttöku með þeirri yfirlýstu afstöðu að gera framhald aðildarviðræðnanna að ófrávíkjanlegu skilyrði. En sjónarhornin eru fleiri.
Kenningin gengur út frá því að slit viðræðna verði ófrávíkjanlegt skilyrði af hálfu Sjálfstæðisflokksins. Þá á hann ekki annarra kosta völ en að mynda stjórn með þátttöku VG. Þrengi Sjálfstæðisflokkurinn samningsstöðu sína styrkist staða viðsemjendanna að sama skapi. VG gæti hugsanlega við slíkar aðstæður unnið upp áhrif af tapi í kosningum. Fáir sjá gæfu Íslands liggja þar.
Fari svo að VG hafni því á flokksráðsfundi síðar í þessum mánuði að bera ábyrgð á framhaldi viðræðnanna er sá flokkur um leið að segja að hann ætli ekki í ríkisstjórn nema með Sjálfstæðisflokknum. Það væru stór tíðindi. Framhald á sögulegu vinstra samstarfi yrði þar með útilokað fyrir kosningar. Nýr leiðtogi Samfylkingarinnar yrði því á fyrsta degi að hrökkva eða stökkva með stjórnarslitahótunina. Ef hann hrykki yrði Samfylkingin að gjalti og algerlega marklaus í kosningabaráttunni.
Af þessu má ráða að allir flokkarnir eru í klípu með þetta mál. Loki menn á þessa leið áður en á hana reynir í alvöru gætu menn verið að glata besta tækifærinu til vaxtar og varanlegs stöðugleika. Kosningabaráttan mun síðan sýna hverjir ætla að gera það að fyrsta boðorði sínu að þrengja kosti Íslands.
Skoðun

Raunveruleg úrræði óskast takk!
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

(Ó)merkilegir íbúar
Örn Smárason skrifar

Vangaveltur um ábyrgð og laun
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Gervigreind í daglegu lífi: 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Til hvers að læra iðnnám?
Jakob Þór Möller skrifar

Komir þú á Grænlands grund
Gunnar Pálsson skrifar

Ólöglegir ópíóðar: Skaðaminnkandi þjónusta bráðnauðsynleg
Ósk Sigurðardóttir skrifar

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar

Skjólveggur af körlum og ungum mönnum
Ólafur Elínarson skrifar

Menntamál eru ekki afgangsstærð
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

‘Vók’ er djók
Alexandra Briem skrifar

Er friður tálsýn eða verkefni?
Inga Daníelsdóttir skrifar

Kattahald
Jökull Jörgensen skrifar

Framtíðin er rafmögnuð
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar

Ekki biðja um undanþágur heldur krefjast réttar samkvæmt EES-samningnum
Erna Bjarnadóttir skrifar

Þjóðarmorðið í blokkinni
Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar

Breiðholtið er frábært! Gerum betur í umfjöllun og orðræðu
Kristín Dögg Kristinsdóttir skrifar

Ég hataði rafíþróttir!
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Því miður hefur lítið breyst
Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Versta sem Ísland gæti gert
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar