Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, kemst inn á þing samkvæmt nýjustu könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins og Sjálfstæðismenn bæta við sig þremur þingmönnum miðað við síðustu kosningar en Samfylkingin missir ellefu þingmenn og Vinstri græn níu.
Hér fyrir neðan má sjá þá þingmenn sem kæmust á Alþingi, samkvæmt könnuninni.
Norðvesturkjördæmi:
Framsókn
Gunnar Bragi Sveinsson
Ásmundur Einar Daðason
Elsa Lára Arnardóttir
Jóhanna María Sigmundsdóttir
Sjálfstæðisflokkur
Einar Kristinn Guðfinnsson, alþingismaður, Bolungarvík.
Haraldur Benediktsson, bóndi, Akranesi.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, viðskiptafræðingur, Tálknafirði.
Vinstri græn
Lilja Rafney Magnúsdóttir
Norðausturkjördæmi:
Framsókn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar, Reykjavík
Höskuldur Þórhallsson, alþingismaður, Akureyri
Líneik Anna Sævarsdóttir, Skólastjóri, Fjarðabyggð
Þórunn Egilsdóttir, Verkefnastjóri hjá Austurbrú,Vopnafjörður
Hjálmar Bogi Hafliðason, kennari og bæjarfulltrúi, Norðurþingi
Sjálfstæðisflokkur
Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður, Akureyri.
Valgerður Gunnarsdóttir, skólameistari Framhaldskólans á Laugum, Þingeyjarsveit.
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, Fjarðabyggð.
Samfylking
Kristján L. Möller, alþingismaður
Vinstri græn
Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra, Þistilfirði
Suðurkjördæmi:
Framsókn
Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður, Hrunamannahreppi
Silja Dögg Gunnarsdóttir, skjalastjóri, Reykjanesbæ
Páll Jóhann Pálsson, útvegsbóndi, Grindavík
Haraldur Einarsson, verkfræðinemi, Flóahreppi
Fjóla Hrund Björnsdóttir, starfsmaður Hótel Rangá og nemi í HÍ
Sjálfstæðisflokkur
Ragnheiður Elín Árnadóttir, alþingismaður, Reykjanesbæ
Unnur Brá Konnráðsdóttir, alþingismaður, Hvolsvelli
Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi bæjarstjóri, Garði
Samfylking
Oddný G. Harðardóttir, alþingismaður.
Vinstri græn
Arndís Soffía Sigurðardóttir, lögfræðingur.
Suðvesturkjördæmi:
Björt framtíð
Guðmundur Steingrímsson, alþingismaður og formaður Bjartrar framtíðar.
Framsókn
Eygló Harðardóttir, alþingismaður
Willum Þór Þórsson, kennari
Þorsteinn Sæmundsson, rekstrarfræðingur
Sigurjón Norberg Kjærnested, verkfræðingur
Sjálfstæðisflokkur
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingismaður,
Jón Gunnarsson, alþingismaður,
Vilhjálmur Bjarnason, lektor,
Samfylking
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar
Katrín Júlíusdóttir, fjármálaráðherra
Píratar
Birgitta Jónsdóttir þingmaður
Björn Leví Gunnarsson, doktorsnemi í tölvunarfræði
Reykjavík suður:
Björt framtíð
Róbert Marshall, alþingismaður.
Framsókn
Vigdís Hauksdóttir, alþingismaður
Karl Garðarsson, framkvæmdarstjóri og fyrrv. Fréttastjóri
Sjálfstæðisflokkur
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi,
Pétur H. Blöndal, alþingismaður
Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður
Samfylkingin
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður
Helgi Hjörvar, þingmaður
Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi
Vinstri græn
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra
Píratar
Jón Þór Ólafsson, aðstoðarmaður Birgittu Jónsdóttur
Reykjavík norður:
Björt framtíð
Björt Ólafsdóttir, mannauðsstjóri
Heiða Kristín Helgadóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar og framkvæmdastjóri Besta flokksins.
Framsókn
Frosti Sigurjónsson, rekstrarhagfræðingur
Sigrún Magnúsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokkur
Illugi Gunnarsson, alþingismaður
Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður
Birgir Ármannsson, alþingismaður
Samfylking
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra
Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður
Vinstri græn
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra
Píratar
Helgi Hrafn Gunnarsson, kerfisstjóri.
Rétt er að árétta að fyrir mistök var Arndís Soffía Sigurðardóttir, lögmaður og núverandi varaþingmaður vinstri grænna ekki talin upp í sjónvarpsfréttinni hér að ofan en hún virðist ætla komast inn sem þingmaður fyrir Suðurkjördæmi.
Úrtakið í könnuninni var 1.899 manns en hringt var þar til náðist í 1.200 samkvæmt lagskiptu úrtaki mánudaginn 15. apríl og þriðjudaginn 16. apríl.
Svarhlutfallið var 63,2 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr Þjóðskrá.
Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu og aldri.
Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag?
Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa?
Ef ekki fékkst svar var að lokum spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk?
Alls tók 67,8 prósent þátttakenda í könnuninni afstöðu til spurningarinnar.
Þessir kæmust á þing
Tengdar fréttir
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig - Framsókn dalar
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig verulegu fylgi en Framsókn dalar samkvæmt nýrri könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Prófessor í stjórnmálafræði segir að útspil Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokks, um síðustu helgi hafi heppnast fullkomlega.