Tíska og hönnun

Stjörnubarn fær módelsamning

Stjörnubarnið Ireland Baldwin er komið á módelsamning hjá hinni virtu fyrirsætuskrifstofu IMG Model. Þetta tilkynnti Ireland á Twitter í vikunni.

Ireland er dóttir leikarans Alec Baldwin og leikkonunnar Kim Basinger en Kim var einmitt farsæl fyrirsæta áður en hún sneri sér að leiklistinni.

Ung á uppleið.
Alec og Kim skildu árið 2002 og lenti Ireland, nú sautján ára, á milli þeirra í hatrammri forræðisdeilu. Allt er gott sem endar vel og virðist sambandið á milli þeirra þriggja vera mjög gott í dag.

Dökkhærð með pabba árið 2009.
Með mömmu á ströndinni fyrir stuttu.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×