Innlent

"Menn verða að vera við öllu búnir"

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Íslands, segir að jafnvægisleysið sem birtist í yfirlýsingum Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, geri það að verkum að menn verði að vera við öllu búnir.

Bandaríkjamenn tóku í dag ákvörðun um að senda eldflaugavarnarkerfi til eyjarinnar Gvam. Tilgangurinn segja þeir vera að geta varist mögulegum árásum Norður-Kóreu á herstöðvar Bandaríkjanna.

Í tilkynningu frá Norður-Kóreumönnum er varað við miskunnarlausum árásum og sagt að óðum styttist í fyrstu sprenginguna. Stríð geti hafist í dag eða á morgun.

„Við Íslendingar fordæmum harðlega hótanir Norður-Kóreu, bæði á hendur grönnum sínum og einnig Bandaríkjamönnum. Þær eru með öllu óþolandi ekki síst í ljósi ákvörðunar Norður-Kóreu um að taka aftur upp vinnu til þess að búa til kjarnorkuvopn," segir Össur Skarphéðinsson í samtali við Vísi.

Össur segir ljóst að Norður-Kóreumenn hafi komið sér upp allgóðri þekkingu á kjarnorkutengdri vopnatækni. Þeir hafi einnig sýnt að þeir geti smíðað eldflaug sem borið geti kjarnavopn.

„Við hvetjum allar þjóðir, ekki síst Kínverja, til að taka höndum saman að koma í veg fyrir áframhaldandi árætni Norður-Kóreu og til þess að leiða þessa spennu í jörð," segir Össur. Hann segir full ástæða til að taka hótanir þeirra alvarlega.

„Þær eru ógn við nágrannaríkin. Svona spennuástand sem byrjar með hótunum og harðdrægum yfirlýsingum geta stigmagnast og farið úr böndunum. Það gildir ekki síst í þessu vilviki þar sem um er að ræða nýjan og reynslulítinn leiðtoga. Þær geta leitt til raunverulegra átaka."

Össur segir flutning Bandaríkjamanna á varnarkerfi sínu aðra undirstrika alvarleika málsins. Kerfið sé hugsað til að verjast langdrægum og meðaldrægum eldflaugum frá Norður-Kóreu. Sömuleiðis gæti vaxandi óþolinmæði Kínverja gagnvart Norður-Kóreu.

„Margir töldu upphaflega að þessi síðasta lota hans væri taktík veiks leiðtoga til þess að safna á bak við sig langkúgaðri þjóð. Þannig afgreiddu menn hótanirnar í upphafi. Þetta er stigmögnun á spennunni sem er að aukast. Jafnvægisleysið sem birtist í yfirlýsingum og fari þessa nýja leiðtoga gera það að verkum að menn verða að vera við öllu búnir. Það veit enginn til hvers þau geta leitt," segir Össur.


Tengdar fréttir

Vara við miskunnarlausum árásum

"Það styttist óðum í fyrstu sprenginguna," segir í yfirlýsingu frá her Norður-Kóreu sem var birt á ríkismiðlinum KCNA í dag. Yfirlýsingin kemur í kjölfar ákvörðunar Bandaríkjahers að styrkja varnarstoðir með því að senda eldflaugavarnarkerfi til eyjarinnar Gvam.

Raunveruleg ógn af hendi Norður-Kóreu

Bandaríkin ætla að senda háþróað eldflaugavarnarkerfi til eyjarinnar Gvam í Kyrrahafi vegna yfirvofandi ógnar af hendi Norður-Kóreu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×