Tíska og hönnun

Ég er ekki díva

MYNDIR / COVER MEDIA
Hin fjölhæfa Jennifer Lopez prýðir forsíðu nýjasta heftis Harper's Bazaar. Þessi 43ja ára súperstjarna situr fyrir í ýmsum lúxusflíkum og virðist geta gert hvað sem er.

"Ég er söngkona. Ég er dansari. Ég er skemmtikrafur. Ég er leikkona," segir Jennifer.

Silfurdama.
Á myndum inni í blaðinu er Jennifer í flíkum úr vorlínu Paco Rabanne, Roberto Cavalli, Balmain, Versace og Tom Ford. Hún segist samt ekki vera díva eins og margir halda.

Jennifer og kærastinn, Casper Smart.
"Ég elska að líta vel út þegar ég ferðast. Ég geri það eins auðvelt og fallegt og ég get því lífið mitt er frekar stórfenglegt. Ég pakka sjálf í töskurnar, klæði mig sjálf, greiði krökkunum mínum, vel fötin þeirra – það gerir lífið fallegt," segir Jennifer.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.