„Kolgrafafjörður verður óbyggilegur ef síld drepst þar aftur“ Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 24. október 2013 19:13
Kolgrafafjörður verður óbyggilegur ef síld drapst þar aftur í stórum stíl.“ Þetta segir bóndi á Eiði en hann og fleiri íbúar í og við Kolgrafafjörð krefjast þess nú að loka brúnni sem þverar fjörðinn. Annars sé ómögulegt að koma í veg fyrir frekari síldardauða. Umfangsmiklar mælingar standa nú yfir í Kolgrafafirði þar sem áhrif þverunar fjarðarins eru rannsökuð. Íbúar á svæðinu hafa farið fram á við umhverfis- og auðlindaráðherra að firðinum verði lokað. Alls drápust fimmtíu þúsund tonn af síld í desember og febrúar, af þeim voru tuttugu og fimm þúsund grafin í fjörunni við bæinn Eiði. Íbúar á svæðinu reyna nú að finna lausn svo að hægt sé að koma í veg fyrir að slíkur atburður eigi sér stað á ný. Sérstaklega er horft til brúarinnar sem þverar fjörðinn. Umhverfisstofnun hefur birt drög að viðbragðsáætlun ef síldardauði á sér stað á ný í firðinum. Heimamenn ítreka að tímanum sé betur varið í fyrirbyggjandi lausnir „Það er bara ein leið til að fyrirbyggja þetta,“ segir Bjarni Sigurbjörnsson, bóndi á Eiði í Kolgrafafirði. „Hún er að loka að brúnni. Þetta er örugglega mjög dýr framkvæmd en það er líka dýrt að láta síldina drepast. Það drepst mögulega mun meira en síðast og það er líkur á að það verði raunin, enda er súrefnið lítið í firðinum.“„Ef þetta gerist aftur þá er vandamálið miklu stærra en síðast.“MYND/FRÉTTASTOFASamkvæmt áætlun Umhverfisstofnunar myndi urðun síldar, af svipuðu umfangi í desember og febrúar, kosta um milljarð króna og fara fram við Fíflholt. Síldin lónir nú rétt fyrir utan fjörðinn. Bjarni segir það vera nauðsynlegt að loka brúnni, að minnsta kosti þangað til að vísindamenn hafa unnið sína vinnu í firðinum. Niðurstöður mælinga liggja fyrir á næsta ári. „Það er umhverfisslys að loka ekki brúnni og það er sjálfsagt umhverfisslys að gera það.“ Mengunin er sannarlega til staðar í Kolgrafafirði. Enn er grútur víða og óþefur liggur yfir fjörunni. Þetta hvalhræ rak inn í lónið fyrir neðan Eiði í vikunni og liggur þar rotnandi í svarti eðju, hún ber vitni um þær þúsundir tonna sem grafin voru á svæðinu. „Ef þetta gerist aftur þá er vandamálið miklu stærra en síðast. Fjörðurinn þolir ekki annað eins dráp. Fyrir utan að það verður gríðarlega dýrt að hreinsa og ef það verður ekki gert þá held ég að maður pakki bara saman. Mér líst mjög illa á þetta. Ég held að þetta verði til þess að svæðið verði óbyggilegt um einhvern tíma.“
Tengdar fréttir Undarlegt ástand í Kolgrafafirði Enn eitt náttúruundrið virðist vera í uppsiglingu í Kolgrafafirði. Þar eru nú saman komnar súlur í þúsunda tali og stinga sér svo þétt eftir ætinu, að margar vængbrotna í hamagangnum, og enginn veit af hverju síld er nú í firðinum. 23. apríl 2013 11:28 Síldin mögulega komin í Kolgrafafjörð Síld virðist vera farin að leita inn á Kolgrafafjörð á Snæfellsnesi og hafa háhyrningar sést þar á ferð innan við brúnna, sem er á þverun fjarðarins. 21. október 2013 07:17 Heimamenn vilja útiloka síld frá Kolgrafafirði Bæjarráð Grundarfjarðar skorar á Sigurð Inga Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, að leyfa lokun Kolgrafafjarðar án tafar vegna hættu á frekari síldardauða í firðinum. 18. október 2013 20:45 Síld innan við brú í Kolgrafafirði Síld er að öllum líkindum farin að ganga undir brúnna í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi eins og sést á meðfylgjandi myndbandi sem ljósmyndarinn Tómas Freyr Kristjánsson frá Grundarfirði gerði. 22. október 2013 16:55 Mikið inngrip að loka Kolgrafafirði Það er tæknilega mögulegt að loka Kolgrafafirði til að koma í veg fyrir síldargöngur inn í fjörðinn, en slík framkvæmd er hins vegar það mikið inngrip sem slík hún þyrfti að öllum líkindum að fara í umhverfismat. 22. október 2013 07:00 Mest lesið Fjársöfnunin á borð lögreglu í enn eitt skiptið Innlent Dregur ummælin til baka og biðst afsökunar Innlent Segir ummæli Ásthildar Lóu ekki samræmast stöðu hennar Innlent Ingibjörg æf vegna bókunar meirihlutans í borginni Innlent Svara fyrir hylmingu í einu stærsta þjófnaðarmáli Íslandssögunnar Innlent Lúffar af ótta við enn meira niðurrif Trumps Erlent Vilja vita hvort Jón Gunnarsson hafi brotið siðareglur þingmanna Innlent Bað Pútín um að hlífa hermönnum sem enginn kannast við Erlent Forsvarsmenn Tesla gjalda varhug við tollaaðgerðum stjórnvalda Erlent Fara fram á gæsluvarðhald yfir þeim fjórða Innlent Fleiri fréttir Fagnar að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd skoði byrlunarmálið Egill Heiðar ráðinn Borgarleikhússtjóri Ingibjörg æf vegna bókunar meirihlutans í borginni Vísa ummælum á bug og telja upp aðgerðir Fara fram á gæsluvarðhald yfir þeim fjórða Byggðajöfnunarmál að fækka sýslumönnum Lax slapp úr sjókví fyrir austan Segir samningsviljann hjá leikfélaginu engan „Geri ráð fyrir að þetta séu ummæli sem féllu í hita leiksins“ Býður út næstsíðasta áfanga vegagerðar í Gufudalssveit Fjársöfnunin á borð lögreglu í enn eitt skiptið Dregur ummælin til baka og biðst afsökunar Hafi gert ýmislegt til að bæta stöðuna í Breiðholti Byrlunarmálið og ofbeldi í Breiðholti Segir ummæli Ásthildar Lóu ekki samræmast stöðu hennar Almennt á móti rekstri spilakassa en tryggja þurfi fjármögnun Vilja vita hvort Jón Gunnarsson hafi brotið siðareglur þingmanna Vill rannsóknarnefnd Alþingis vegna byrlunarmálsins „Ég er rasandi hissa á þessu“ Leit hætt í Borgarnesi og staðan metin með morgninum Svara fyrir hylmingu í einu stærsta þjófnaðarmáli Íslandssögunnar Lögregla bíður þess enn að geta farið til Dóminíska lýðveldisins „Stefnir í að árið í ár verði það versta á öldinni“ Björgunarsveitir við leit í Borgarnesi Vill hefja undirbúning næstu kjarasamninga strax Samfélagslögga flakkar á milli „heitra reita“ og eltir hópamyndun Réttlæta ofbeldi með því að þolandi eigi það skilið Ætlar að finna jarðvarma á köldum svæðum „Hann grátbað mig um að við fengjum að flytja í burtu“ Brutu framrúðu til að bjarga barni læstu inni í bíl Sjá meira
Undarlegt ástand í Kolgrafafirði Enn eitt náttúruundrið virðist vera í uppsiglingu í Kolgrafafirði. Þar eru nú saman komnar súlur í þúsunda tali og stinga sér svo þétt eftir ætinu, að margar vængbrotna í hamagangnum, og enginn veit af hverju síld er nú í firðinum. 23. apríl 2013 11:28
Síldin mögulega komin í Kolgrafafjörð Síld virðist vera farin að leita inn á Kolgrafafjörð á Snæfellsnesi og hafa háhyrningar sést þar á ferð innan við brúnna, sem er á þverun fjarðarins. 21. október 2013 07:17
Heimamenn vilja útiloka síld frá Kolgrafafirði Bæjarráð Grundarfjarðar skorar á Sigurð Inga Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, að leyfa lokun Kolgrafafjarðar án tafar vegna hættu á frekari síldardauða í firðinum. 18. október 2013 20:45
Síld innan við brú í Kolgrafafirði Síld er að öllum líkindum farin að ganga undir brúnna í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi eins og sést á meðfylgjandi myndbandi sem ljósmyndarinn Tómas Freyr Kristjánsson frá Grundarfirði gerði. 22. október 2013 16:55
Mikið inngrip að loka Kolgrafafirði Það er tæknilega mögulegt að loka Kolgrafafirði til að koma í veg fyrir síldargöngur inn í fjörðinn, en slík framkvæmd er hins vegar það mikið inngrip sem slík hún þyrfti að öllum líkindum að fara í umhverfismat. 22. október 2013 07:00