Gasol mögulega á leið frá Lakers Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. desember 2013 18:30 Mynd/AP
Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að möguleiki sé á því að Pau Gasol sé á leið frá LA Lakers í skiptum fyrir Andrew Bynum, leikmann Cleveland Cavaliers. Lakers virðist ekki líklegt til afreka þetta tímabilið og því munu forráðamenn félagsins skoða leiðir til að skera niður launagreiðslur. Brotthvarf Gasol myndi þýða að Lakers myndi hætta að greiða lúxusskatt. Það myndi ekki einungis spara liðinu háar fjárhæðir nú heldur einnig á næstu árum þegar nýjar og harðari reglur um lúxusskatt taka gildi. Frá og með næsta tímabili verður liðum sem hafa greitt lúxusskatt hvert ár síðustu þrjú tímabil á undan gert að greiða enn hærri sektir en áður hefur þekkst. Lúxusskattur er lagður á lið sem fara yfir fyrirfram ákveðið launaþak NBA-deildarinnar. Lakers hefur greitt þennan lúxusskatt hvert ár síðan 2007. Kobe Bryant er enn að jafna sig eftir að hann sleit hásin fyrr á þessu ári og þá hefur Steve Nash ekki náð að sýna sínar bestu hliðar.
NBA Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira