Skýrslur voru teknar af sakborningunum í morgun, og fyrri manninum eftir hádegi. Þar var misþyrmingum lýst sem stóðu yfir í hálfan sólarhring en að þeim loknum var manninum sleppt. Rétt er að vara við eftirfarandi lýsingum.
Hinn maðurinn lýsir því þegar sakborningarnir hringdu dyrabjöllu á heimili hans við Gullengi í Reykjavík og þóttust vera félagi hans. Hann segist hafa hleypt sakborningunum inn og þar hafi þeir verið þrír, Stefán Blackburn, Gísli Þór og Hinrik Geir.
Þeir hafi ráðist á sig með kylfum og slegið sig í fæturna. Hann hafi þá gert sér grein fyrir því að sakborningarnir ætluðu að flytja sig annað og því hafi hann boðist til þess að fara sjálfviljugur með þeim.
Hann segir þá hafa tekið af sér síma og lykla og að Stefán Blackburn hafi haldið hníf upp við síðu hans og sagt að hnífurinn færi inn ef hann reyndi að flýja. Honum hafi verið ekið að íbúðinni við Grýtubakka þar sem Stefán Logi Sívarsson hafi beðið þeirra „með ógnandi tilburði og hálf trítilóður“.
Stefán Blackburn hafi farið út úr bílnum og Stefán Logi spurt „er þetta hann?“. Hann hafi næst byrjað að tala um hvað hann væri ófríður og gefið sér tvö eða þrjú kjaftshögg.

Maðurinn segir ákærðu hafa gengið með sér að íbúðinni, sem honum skilst að bróðir Stefáns Loga eigi. Þar hafi hitt fórnarlambið verið, bólginn að sjá og mjög hræddur.
Stefán Logi hafi þá lagt það til að farið yrði með manninn til Hafnarfjarðar til föður Stefáns Loga. Stefán Logi hafi líka haft orð á því að binda ætti manninn „eins óþægilega og hægt væri“.
Í Hafnarfirði hafi honum verið skellt á magann og hendur bundnar fyrir aftan bak og síðan fætur við hendur. Hann hafi verið „í hálfgerðu U-i á maganum“.
„Stefán (Blackburn) sparkar eitthvað í mig. Síðan þegar ég búinn að vera þarna á gólfinu í smá stund þá er mér byrjað að verkja í axlinar, enda frekar óþægileg staða sem ég var í. Stefán (Blackburn) spyr hvort ég sé að reyna að sleppa, og segir að ég muni ekkert sleppa og sparkar í hnakkann á mér og líkamann. Þannig gengur þetta þangað til að Stefán Logi kemur. Þá fyrst hefst þetta fyrir alvöru, ofbeldið.“
Maðurinn lýsir því hvernig honum hafi verið snúið á hliðina. Þá hafi verið búið að losa fæturna frá en hendurnar hafi enn verið bundnar. „Þá ákveður hann að kveikja í mér. Stefán Logi stjórnar því en Stefán Blackburn sprautar rakspíra á axlirnar á mér. Þeir eru búnir að taka mig úr að ofan þarna og hann (Stefán Blackburn) ber síðan eld að.“
Maðurinn segir að Stefáni Loga hafi ekki fundist þetta nógu gott og hafi því skipað einhverjum að taka buxurnar niður um hann. „Stefán Logi reynir að gera eitthvað grín að kynfærum mínum, tekur rakspírann og sprautar yfir kynfærin og kveikir í. Þá fyrst sýni ég einhver alvöru viðbrögð, fer yfir á magann til að slökkva og þeir fara að berja mig.“
Ringlaður af lyfjum
Maðurinn segir högg hafa dunið á sér úr öllum áttum. Notaðar hafi verið kylfur og við það hafi brotnað tönn í honum og vörin farið í sundur.
„Það var högg með skaftinu á einhverri kylfu sem Stefán Logi veitti mér. Stefán Blackburn notaði líka skaft á kylfu og hitti mig í augað. Þeir eru að öskra á mig þarna með að ég hafi sofið hjá fyrrverandi kærustu Stefáns Loga. Hann er eitthvað að spyrja mig út í það og ég gekkst ekki við því. Þá heimtar hann að fá að fara inn á Facebook hjá mér. Hann fer þarna inn á og finnur ekki neitt, og þá vill hann komast inn á bankareikninginn. Ég segi honum að ég þurfi símann til þess því það þurfi auðkennisnúmer. Þeir voru ekki með símann þarna og fóru því ekki inn á bankareikninginn.“
Maðurinn segir Stefán Loga hafa slökkt í sígarettu á andlitinu á honum og stigið ofan á höfuð hans. „Hann sneri eins og hann væri að drepa í sígarettu ofan á andlitinu á mér.“ Þá hafi Stefán Blackburn verið með litlar vírklippur sem hann hafi sett reglulega í kringum hans og hótað að klippa.
„Síðan ákveður Stefán Logi að ég eigi að gleypa einhverjar pillur sem hann er með í höndinni. Fulla lúku af mislitum pillum sem hann treður upp í mig og einhver af þeim réttir mér vatnsglas til að kyngja. Síðan halda höggin áfram. Stefán Logi segir Davíð að sprauta mig, og Davíð spyr hvernig hann eigi gera það. Stefán Logi segir honum að gera það í rassinn, og þá finn ég nál í stingast í rassinn á mér í gegnum gallabuxurnar.“
Maðurinn segir Stefán Blackburn hafa spurt sig hvort hann héldi að hann gæti brotið fót hans og hafi í kjölfarið slegið sig mjög fast fyrir neðan kálfann. „Þá var tekin ákvörðun um að fara með mig eitthvað inn á bað og láta mig stinga hausnum undir sturtuna og smúla mig.“
Hann segir föður Stefáns Loga hafa viljað að þeir færu. Hann hafi sagst „ekki þekkja þessa stelpu neitt, og segist ekki nenna að hlusta á þetta væl“. Þeir hafi sett skæri upp að rifnu vörinni og spurt hvort hann vildu að þeir klipptu hana af.
„Ég er orðinn mjög ringlaður þarna af þessum lyfjum, og heyri Davíð segja að hann geti saumað þetta. Stefán Logi spyr hvort ég vilji fara í „einn á einn“ við hann. Ég segi „nei ég er hræddur við þig. Þarna er ég byrjaður að detta út, orðinn mjög ruglaður.“

Maðurinn segir Stefán Loga hafa gefið fyrirskipun um að fara ætti með hann á Stokkseyri. Hann segir Stefán Blackburn og Davíð hafa keyrt með sig í burtu. „Ég man að ég sat aftur í. Það var kominn dagur þarna. Síðan ranka ég við mér þegar við erum komnir út á Stokkseyri.“
Þar hafi ákærðu farið með sig inn í hús og inn í herbergi. Húsráðandi hafi verið á staðnum og hafi ekki litist á blikuna. „Þeir fara með mig og klæða mig úr öllum fötunum. Stefán (Blackburn) er að berja mig með belti og rafmagnssnúrum og eitthvað og þeir klæða mig í svartan ruslapoka, búnir að klippa út fyrir hendur og höfuð.“
Þá hafi þeir ýjað að því að hann myndi ekki eiga afturkvæmt, strekkt á hann mél „upp í kjaftinn og smellt að aftan“. Þeir hafi farið með hann undir húsið og bundið hann við burðarstólpa, þar sem þeir hafi skilið við hann í myrkrinu. „Ég var mjög ruglaður af lyfjunum, var alltaf að sjá einhverjar hreyfingar og ofsjónir. Á þessum tímapunkti var ég búinn að sætta mig við að þetta væri bara búið hjá mér.“
Maðurinn segist hafa tekið sjálfur af sér mélið og íhugað að flýja en húsráðandi hafi boðið sér að koma upp. Hann hafi sagt að ákærðu væru farnir í bæinn. „Hann hringdi í Davíð og spurði hvað hann ætti að gera, Davíð sagði að það ætti að sleppa mér en Stefán Blackburn var á bak við að öskra að það ætti ekki að sleppa mér.“
Húsráðandi leyfði manninum að fara í sturtu, og lét hann hafa „einhverja larfa til að fara í“, og safnaði saman klinki fyrir hann til að taka strætó í bæinn. Hann segist hafa fengið þau fyrirmæli að hann ætti að segjast „hafa lent í slagsmálum á sveitaballi“. Húsráðandi hafi skilið hann eftir á bensínstöð þar sem brotaþoli hafði samband við föður sinn, sem sótti hann síðan.
„Pabbi vildi að ég færi beint á slysó, en ég var hræddur. Hélt að þeir væru kannski þar að bíða eftir mér. Ég fór inn að aftan á slysó af því ég var svo hræddur.“

Maðurinn segir upphaf atburðarásarinnar mega rekja til kynna hans af barnsmóður Stefáns Loga. Hann hafi byrjað að reyna að rukka sig um pening og sagt að hann skuldaði fimm milljónir fyrir að hafa sofið hjá henni.
Verjandi Stefáns Loga spurði manninn hvort Stefán Logi hafi einhvern tímann komið í Gullengið. „Hann kom ekki með þeim að ná í mig,“ svaraði hann, en þegar hann hafi komið aftur í íbúðina hafi verið búið að taka vegabréfið sitt, sjónvarp og fleira. Þá segir verjandi Stefáns Loga að engin merki séu um brunasár í læknisvottorðum og um að kynfærahár hafi verið sviðin.
Afleiðingar ofbeldisins segir maðurinn vera þær að rifnað hefði upp á milli kálfa og hásinar þegar hann fór síðar að stunda íþróttir. Þá sé hann með ör í andliti í vörinni, og fór hann upp að dómurunum til að sýna þeim það.
Hann lýsir andlegu ástandi sínu í kjölfar árásarinnar. „Það er mjög óþægilegt að líða eins og maður þurfi að vera með augu í hnakkanum allan sólarhringinn,“ segir hann, en bætir því við að hann hafi fengið sálfræðiaðstoð. Þá hafi hann óttast frekari líkamsmeiðingar. Hann segir hótanir hafa borist eftir árásina um að hann yrði drepinn ef hann myndi kæra. Hann hafi einnig verið minntur á að bróðir Stefáns Loga væri ekki í fangelsi. „Ég er kominn úr bænum. Ég þori ekki að vera í Reykjavík,“ segir hann.