Lífið

Bráðfyndin klippa af Chris Farley slær í gegn

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
Rob Ford og Chris Farley eru nauðalíkir.
Rob Ford og Chris Farley eru nauðalíkir.
Borgarstjórinn í Toronto í Kanada, Rob Ford, er nú valdalaus eftir að borgarstjórnin í Kanada svipti hann öllum völdum í síðustu viku. Ford lenti í miklum vandræðum og varð að lokum að viðurkenna að hafa reykt krakk og hegðað sér ósiðlega.

Myndband af borgarstjóranum þar sem hann hótaði karlmanni kvalafullum dauðdaga fór á vefinn og í kjölfarið varð Ford að viðurkenna afglöp sín.

Þó eru einhverjir sem sjá gamansömu hliðina á málinu og á vef Huffington Post má sjá samsett myndskeið sem minnir einna helst á kvikmyndaklippu. Í klippunni má sjá gamanleikarann Chris Farley heitinn bregða fyrir en Farley þykir nauðalíkur Rob Ford. Búið er að taka saman nokkrar af allra bestu kvikmyndasenum Farleys en margar þeirra minna svo sannarlega á sjálfan borgarstjórann.

Sjón er sögu ríkari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.